157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það sem vantaði í þessa ræðu hjá hv. þingmanni er: Hvaða framtíð sér hann fyrir sér? Vill hann einhverjar breytingar eða vill hann bara hætta við borgarlínuna? Það skal tekið fram að ég er ekki talsmaður borgarlínunnar og þá sérstaklega ekki í ljósi þess utanumhalds sem er um hana, þ.e. Betri samgöngur. Ég held að það hafi einfaldlega flækt lausn þeirra mála sem á að leysa hér í höfuðborginni, þ.e. að greiða úr umferð, að búa til enn eitt stjórnsýsluapparatið sem er jafnvel með marga aðra málaflokka á sinni könnu en að greiða úr samgöngum og jafnvel komið í sölu eigna. Þetta er orðið miklu flóknara en fyrir var og ég held að menn hefðu átt að skoða það áður en farið var af stað með þetta fyrirtæki. Það er alveg ljóst að menn geta ekki bara verið á móti þeim lausnum sem eru uppi. Menn verða þá líka að koma með einhverjar aðrar tillögur. En eins og málið liggur hér fyrir þá er þetta svolítið grín á kostnað borgarbúa í nokkrar vikur á hverju ári við að sjá framtíðina fyrir sér án þess að vera með einhverjar hugmyndir sjálfir til að leggja fram um það hvernig þeir ætla að fara í málin þannig að greitt sé fyrir umferð í borginni.