tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Virðulegur forseti. Það er vissulega misskilningur hér í gangi en hann er ekki mín megin. Til að framkvæma slíka rannsókn, líkt og hv. flutningsmenn eru að leggja til, eru þrjár sviðsmyndir sem þarf að skoða. Við erum annars vegar með ástandið eins og það er í dag, fólk þekkir það, en ef þú ætlar að spá fyrir um framtíðina þá verðurðu að bæta við aukningu í umferðinni. Aukningin í umferðinni liggur fyrir, það eru 160 manns sem bætast við umferðina í hverri viku, og það er gert ráð fyrir því í umferðarlíkönum að biðtími muni aukast um 80% árið 2040 ef við förum ekki í borgarlínuverkefnið, ef við breytum ekki ferðavenjunum. Ef þú ætlar að bera saman hvernig framtíðin verður með borgarlínu og án borgarlínu þá verður að kalla fram þau áhrif sem verða með fjölgun íbúa. Það er ekki nægilegt að bera saman við raunveruleikann í dag, því að raunveruleikinn í dag verður ekki til staðar árið 2040. Það sýna allar greiningar og öll gögn.
Ég tek alveg undir að það er alltaf gott að bæta almenningssamgöngur. Við sjáum hvert metárið á fætur öðru í strætó. Við sjáum 45% aukningu í Strætó á síðustu tíu árum. Það var metár árið 2023, sem eru síðustu mælingar sem ég er með hér. Sama má segja um hjólreiðarnar. Þegar við setjum fjármagn í það rúmlega tvöföldum við ferðir sem eru farnar á hjóli. Til að raunverulega breyta ferðavenjum sýna gögnin okkar og greiningarnar að við þurfum að stytta ferðatíma almenningssamgangna. Það upplegg sem er í borgarlínunni, með miðjusetninguna og fleira, það er í raun það sem styttir ferðatímann hvað mest, sem hefur mest áhrif á það að við breytum ferðavenjum. Það er staðreynd að píparar munu ekki nota borgarlínu. Mjög margt fólk sem býr í úthverfum og þarf að skutlast mikið mun ekki nýta borgarlínuna. En því fleiri sem nýta borgarlínuna því færri eru á götunum fyrir pípurunum, fyrir fólkinu sem þarf á bílnum að halda. Þess vegna er verið að fara í þessa vegferð sem byggir á gögnum og greiningum úr umferðarlíkönum. Við þurfum ekki að fara í þetta keilumódel. Ég vona að þetta útskýri betur — við þurfum þessar þrjár sviðsmyndir ef við ætlum raunverulega að ná fram réttum upplýsingum.