157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:39]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans tillögu og framsöguræðu. Ég væri í rauninni alveg til í að fallast á þessa hugmynd, með einu skilyrði, að þessar keilur sem hv. þingmaður vill setja á Suðurlandsbrautina og víðar myndu þá vera með andlitum þingmanna Miðflokksins og jafnvel lógó Miðflokksins til þess að það myndi sjást hvaðan hugmyndin er komin.

En ef við förum aðeins í grunninn þá er mikilvægt að hafa í huga að það er mikill vöxtur í almenningssamgöngum í heiminum og hágæða almenningssamgöngukerfum. Ég var í Póllandi í síðasta mánuði og þar var verið að kynna nýtt metro-kerfi í Kraká sem er stór borg í Suður-Póllandi. Lengi vel töldu menn að þessar hugmyndir um almenningssamgöngukerfi væru svolítið farnar og búnar, léttlestum í Evrópu fækkaði víða á miðri síðustu öld en síðan hefur orðið alger endurreisn þessara hugmynda um hágæða almenningssamgöngukerfi. Fyrir utan það mætti auðvitað segja: Gott og vel, Kraká er risastór borg og við getum aldrei borið okkur saman við þannig borgir. Þá vil ég bara benda á það að á undanförnum fimm árum, bara á þessum áratug, hafa verið tekin í notkun ný léttlestarkerfi í Tampere, í Lundi í Svíþjóð og í Óðinsvéum í Danmörku. Þetta eru sem sagt ný léttlestarkerfi sem hafa verið tekin í notkun síðan árið 2020. Það er því mikill uppgangur í þessu og mjög víða eru borgir að velta því fyrir sér með hvaða hætti þær geti fengið sín hágæða almenningssamgöngukerfi til þess að standast ákveðna samkeppni við allar hinar borgirnar sem hafa slíkt kerfi.

Hjá okkur á Íslandi var farið í þessa vinnu, mjög faglega og mjög vandaða, skoðaðir ýmsir valkostir og fólk velti því fyrir sér hvaða kerfi væri best. Í fyrsta lagi hvort hér væri grundvöllur til að reka hágæða almenningssamgöngukerfi og niðurstaða COWI-skýrslu og fleiri sýndu að svo væri. Svo var spurt: Hvernig ætti slíkt kerfi að vera? Það voru ýmsir hlutir sem komu til greina og kom í ljós að í ljósi þess þéttleika sem er í Reykjavík væri svokallað BRT-kerfi, borgarlínukerfi, heppilegra kerfi en kerfi sporvagna. Það var því ákveðið, eftir mjög faglega vinnu, að ráðast í þá vinnu að búa til svokallað BRT-kerfi. Pólitíkin í sumum löndum er með þeim hætti að fólk vill fá lestir og sporvagna og sums staðar er umræða af því tagi að fólk berst fyrir því að það komi sporvagn eða neðanjarðarlest í þeirra kjördæmi og vill fá það. Hérna hefur það einhvern veginn stundum verið þannig að menn hafa reynt að tala þetta niður og tala niður hugmyndina um BRT og segja: Við skulum bara hafa þetta strætó, hafa þetta úti í kanti o.s.frv.

Ég væri forvitinn að vita hvort það væri einhver umferðarverkfræðingur einhvers staðar sem væri til í að framkvæma tilraunina með þeim hætti sem hér er lögð til, þ.e. að það væri einhvern veginn sniðugt að fá þessar mælingar fram með því að loka bara akreinum og sjá hvaða áhrif það hefði. Umferðarverkfræði er fræðigrein þar sem menn geta reiknað ýmsa hluti út og vissulega geta svona tilraunir verið gagnlegar en ég held ég myndi ekki finna marga umferðarverkfræðinga sem myndu mælast til þess að ódýrasta leiðin til að framkvæma tilraun á umferðarmagni sé að loka akreinum og gera fólk pirrað. Í alvörunni, ég held að sá umferðarverkfræðingur sé ekki til, enda held ég að í orðum hv. þingmanns hafi komið fram, ef ég fer eftir minni, að þegar fólk sæi hvaða áhrif þetta hefði þá myndu menn átta sig á því hvers konar vitleysa borgarlínan er. Ég held að ég sé nokkurn veginn að fara rétt með það sem hv. þingmaður sagði, það var andinn sem ræðan lýsti, þá myndi fólk átta sig á hversu miklar tafir yrðu og þá myndi það snúast gegn hugmyndinni.

Mér finnst því þessi tillaga bera miklu meira með sér að vera einhvers konar pólitískur aktívismi, tilgangurinn sé sá að reyna að þvælast fyrir og hindra umferð í borginni þannig að fólk snúist gegn hugmyndinni um borgarlínu. Það minnir mig kannski svolítið á ákveðinn aktívisma sem hefur verið í Evrópu að undanförnu og sums staðar þar sem fólk sem hefur haft mikla trú á því að loftslagsmálin væru á leiðinni norður og niður, legðist á göturnar og reyndi einhvern veginn að hindra bílaumferð. Það verður að segjast að sá aktívismi hefur ekkert endilega orðið þeim ágæta málstað til framdráttar. Fólk hefur frekar orðið pirrað á því sem þar er haldið fram af því að fólk verður almennt pirrað á því að komast ekki leiðar sinnar þegar götum er lokað af tilefnislausu.

Þegar ég var í borgarstjórn fyrir nokkrum árum lagði fulltrúi Miðflokksins þar fram tillögu sem var ámóta vitlaus, þó ekki jafn vitlaus og þessi. Þá var lagt til að í stað þess að fara í stofnframkvæmdirnar, þá yrðu akreinarnar afmarkaðar og gerðar að sérakreinum fyrir strætó yfir ákveðinn tíma. Það má þó finna einhverja vitglóru í þeirri nálgun og hún tengist líka hugmyndum um svokallað BRT-„light“ sem sums staðar hefur verið talað fyrir. Það er í rauninni hugtak sem varð til í Afríku þegar fólk var að leika sér með BRT-kerfi og einhver sagði: Það er of dýrt að gera þetta svona, við skulum reyna að fara í borgarlínukerfi án þess að ráðast í stofnbrautir, bara afmarka akreinarnar og reyna að láta þetta ganga þannig upp. Það getur mögulega verið einhver vitglóra í því á ákveðnum köflum að prófa að venja fólk við borgarlínukonseptið með þeim hætti. En líkt og sagt hefur verið þá er borgarlína kannski aðeins meira en þetta.

Ég tek undir það sem hér kom fram í andsvörum, að auðvitað er tilgangslítið að gera tilraunir án þess að um leið komi líka sú þjónustuaukning sem í borgarlínu myndi felast, það verður bara að segjast. Við erum að fara að byggja upp kerfi á Keldum, við erum að fara að byggja kerfi víða í borginni, norðar og austar, og það verður bara að finna einhverja almennilega lausn á því hvernig almenningssamgöngur þar verða leystar þegar þessi kerfi verða tekin í notkun.

Það hafa verið gerðar rannsóknir á því hvaða áhrif þetta muni hafa á umferð, þ.e. hvernig ástandið er í dag, hvernig ástandið verður eftir fimm ár, ef ekkert verður gert, og hvernig ástandið verður eftir fimm ár ef við fáum borgarlínu. Ég vísa í frumdragaskýrslu borgarlínu og fleiri skýrslur sem gerðar hafa verið en vísa sérstaklega í frumdragaskýrslu borgarlínu þar sem er t.d. miðað við fyrsta ár, það umhverfi sem var þá. Þá var gert ráð fyrir umferð á Suðurlandsbrautinni 23.500 bílar og fimm árum síðar, að óbreyttu, yrði hún 25.400 bílar, sem sagt myndi aukast um 2.000. Síðan með tilkomu borgarlínu myndi umferðin þar minnka í 17.100 bíla. Fleiri útreikningar hafa líka verið gerðir. Það er því alveg hægt að mæla þessa hluti án þess að fara í einhvern pólitískan aktívisma og loka götum til að láta fólk pirra sig á tilvonandi borgarlínu.

Mér finnst því þessi tillaga, með fullri virðingu, ekki vera mjög alvarleg. Ég myndi ekki finna marga umferðarverkfræðinga sem myndu mæla með þessari leið sem ódýrustu og hagkvæmustu og bestu leið til að meta áhrif breytinga á umferð. Mér finnst þetta einhver hrekkjalómaskapur, að það væri svona haha fyndið að setja þetta fram og sjá hvernig hinir bregðast við þessu. Það er mín skoðun og ég mun ekki endilega berjast af fullum krafti fyrir því að þessi þingsályktunartillaga nái fram að ganga, komi til þess að hún komi aftur inn í þingsal.