tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir ræðuna. Mér þótti heldur halla á tillögu mína eftir því sem leið á ræðu þingmannsins. Hv. þingmaður var til í þetta í byrjun gegn því að þetta yrði rækilega merkt okkur í Miðflokknum en færði sig svo yfir í að þetta væri með því vitlausasta sem hv. þingmaður hefði séð. En látum það liggja milli hluta. Það vita það allir hér í salnum að þetta er enginn hrekkjalómaháttur hjá mér enda myndi ég aldrei stríða neinum í því samhengi.
En mig langar til að spyrja hv. þingmann, sem vísaði til þess að hægt væri að keyra hinar ýmsu greiningar í gegnum tölvulíkön: Hver er afstaða hv. þingmanns til þeirrar sanngjörnu kröfu, að ég tel, sem ég ætla bara að setja fram hér núna, ef hún hefur ekki verið sett fram með formlegum hætti annars staðar, að það verði bornar saman í þessum umferðarlíkönum tillögur sem liggja fyrir frá samtökunum Samgöngur fyrir alla annars vegar, sem ganga út á hliðsettar viðbótarakreinar til að bæta flæði og þar fram eftir götunum, töluvert ódýrari lausn en lögð er til í samgöngusáttmálanum og þeim útfærslum, þrengir minna að almennri umferð — hver er afstaða hv. þingmanns til þess að við þingmenn, og þá bæjarstjórnir allar sem að þessu koma, fáum ítarlegan samanburð á greiningu þessara tveggja lausna? Síðast þegar ég spurði hafði þetta ekki verið borið saman og þessar tillögur samtakanna, sem eru með suma reynslumestu samgönguverkfræðinga landsins innan sinna raða — hver er afstaða hv. þingmanns til þess að þetta tvennt verði borið saman og síðan kostnaðar- og ábatagreint með tilliti til árangurs hvað umferðarflæði og mögulega nýtingu almenningssamgangna varðar og hins vegar með tilliti til kostnaðar.