tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Herra forseti. Ég þakka þessar hugleiðingar hv. þm. Guðmundar Ara Sigurjónssonar. Það var nú, held ég, engin spurning. Hann benti bara á að ég ætti að kynna mér gögn og eitthvað slíkt. Það er kannski svo oft viðkvæðið hjá þeim sem tala fyrir svona málum. Ég skil það vel að það sé erfitt að tala fyrir þeim vegna þess að allir vita að kostnaðurinn mun fara úr öllum böndum og hann er þegar farinn að gera það. En það er augljóst að það er hægt að gera þetta á ódýrari hátt. Ég vil bara byrja á þessu nafni, borgarlínan. Það er algerlega villandi, búið til sem einhvers konar pakki utan um það sem fólk á að kaupa og samþykkja, að þetta sé svo æðislegt. Ég vil bara nota tækifærið og benda hv. þingmanni á fjölmargar greinar sem forsvarsmenn Betri samgangna hafa verið að skrifa í blöð í áraraðir þar sem þeir hafa bent á ódýrari lausnir. Auðvitað þarf að greiða leið fyrir þá vagna sem þjóna almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu, að sjálfsögðu þarf að gera það, ég er alls ekki á móti því. En það er til ódýrari leið, það er til léttari leið en þessi svokallaða borgarlína sem menn ætla að fara út í, sem verður okkur sem samfélagi rándýr og leysir ekki þennan samgönguvanda.
Ef Miðflokkurinn væri hér við völd myndum við fjölga akreinum, við myndum fjölga mislægum gatnamótum. Við myndum fara í Sundabraut. Við myndum fara í stofnvegaframkvæmdir á miklu fleiri stöðum en við höfum séð undanfarna áratugi.