tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Herra forseti. Ég vil hér, undir lok þessarar 1. umræðu um þetta ágæta mál, að mínu mati, þakka þeim sem tóku þátt í umræðunum og sérstaklega vil ég þakka þeim sem komu í andsvör við mig og aðra ræðumenn hér áðan. Það er eitt og annað áhugavert sem hefur komið fram hér en það áhugaverðasta er kannski sú tilfinning þeirra sem ég ætla með heildstæðum hætti að leyfa mér að kalla stuðningsmenn borgarlínu. Þeir hafa áhyggjur af því að tilraunin sem hér er lögð til muni pirra fólk af því að hún þrengir að umferð. En staðan sem fólki verður boðin upp á vikurnar sem þessi tilraun er framkvæmd er nákvæmlega sama staða og þetta sama fólk verður í að 7 til 8 árum liðnum náist öll markmið þeirra sem tala fyrir borgarlínu, um 12% hlutfall farinna ferða og allt þetta. Ótti stuðningsmanna borgarlínu við að þetta pirri fólk, sem það mun gera — auðvitað mun það pirra fólk að sjá Suðurlandsbrautinni breytt í einn plús einn veg í staðinn fyrir tveir plús tveir eins og hún er núna. En það er framtíðin og fjöldi bíla á götum borgarinnar, miðað við 1,7% vöxt, verður sá sami eftir 7 til 8 ár og hann verður á fyrsta degi innleiðingar borgarlínu, áður en nokkur áhrif byrja að koma fram. Ég er samt að gefa mér að öll markmiðin náist og að enginn af þessum 12% verði einhver sem áður fór hjólandi eða gangandi allra sinna ferða, að allir komi úr bíl. Það eru forsendurnar sem verið er að gefa sér hérna. Þá verður fjöldi bíla á þessum götum orðinn sá sami að 7 til 8 árum liðnum og hann var áður en borgarlínan komst í gagnið.
Hér hefur margt áhugavert komið fram og ég mun reyna að ná utan um það að einhverju marki. Ég vona að það verði tekið fyrir í nefndinni og skoðað með ígrunduðum hætti. En það sem situr eftir eru áhyggjur stuðningsmanna borgarlínunnar af því að þetta muni pirra fólk. Það er það sem mun auðvitað gerast, að veghlutunum lokuðum, þegar búið verður að taka eina akrein í hvora átt af Suðurlandsbrautinni og allar hinar ákvarðanirnar. Auðvitað mun þetta pirra fólk. Ég held að þetta muni raunar trylla fólk á köflum, galskapurinn sem hér er lagður til. En ég tek undir og ég skil áhyggjur þeirra sem tala fyrir borgarlínu af því að þessi áhrif komi fram með glöggum hætti í raunheimum. Ég skil það bara mjög vel. Þess vegna held ég að við eigum að gera þetta og ég held að hv. þingmenn Guðmundur Ari Sigurjónsson og Pawel Bartoszek hafi í raun rammað inn mikilvægi þess að nýta það tækifæri sem hér liggur fyrir og lagt er til.