eignarhald erlendra aðila á fyrirtækjum í lagareldi.
Virðulegur forseti. Af því að í umræðum um síðasta mál var verið að ræða hvort það væri grín þá vil ég segja í upphafi þessa máls að hér er ekkert grín á ferðinni. Þetta er grafalvarlegt mál og miklir hagsmunir undir. En eins og við þekkjum sem búum hér á Íslandi þá er það eitt af því mikilvægasta sem við höfum gert á liðnum áratugum, í lýðveldissögu okkar, að ná fullum yfirráðum yfir auðlindum okkar, sérstaklega sjávarútvegsauðlindinni — gott ef ekki er afmælisdagur 50 mílna útfærslunnar í dag. Án þess að við hefðum gert það væru hér skip frá öðrum löndum, ekki síst Evrópulöndum, að veiða innan lögsögu okkar og fara með ágóðann af auðlindinni út. Ef við hefðum ekki stofnað Landsvirkjun og værum hér háð erlendum orkufyrirtækjum værum við líka búin að selja frá okkur orkuauðlindina að einhverju leyti. Ef við værum ekki alltaf á tánum við að reyna að þrengja að því að menn kaupi upp land á Íslandi myndum við tapa landinu smátt og smátt. Við höfum reyndar verið að gera of mikið af því vegna þess að við fórum of hratt. Árið 2004 var farið í allt of miklar breytingar á jarðalögum þar sem allt var opnað með það markmið að það ætti að vera hægt að kaupa jarðir eins og hverja aðra fasteign. Á síðustu árum höfum við síðan verið að reyna að vinda ofan af því.
Það mál sem hér um ræðir fjallar líka um auðlind sem er takmörkuð, sem eru sjókvíar í fjörðum við Ísland. Það er takmörkuð auðlind. Sú þingsályktunartillaga sem ég flyt hér ásamt félögum mínum í Framsóknarflokknum, Ingibjörgu Isakssen, Þórarni Inga Péturssyni, Höllu Hrund Logadóttur og Stefáni Vagni Stefánssyni hljóðar þannig:
„Alþingi ályktar að fela atvinnuvegaráðherra að leggja fram frumvarp til laga sem takmarkar eignarhald erlendra aðila á fyrirtækjum sem hafa rekstrarleyfi til laxeldis í sjó (sjókvíaeldi) við strendur Íslands þannig að það verði að hámarki 25%.“
Það eru, eins og við þekkjum úr sjávarútvegsumræðunni, sambærilegar takmarkanir hvað það varðar. Áfram segir:
„Við undirbúning lagasetningarinnar verði m.a. tekið mið af löggjöf í Færeyjum þar sem sambærilegar takmarkanir eru í gildi. Sérstök áhersla verði lögð á að tryggja að lagasetningin sé í samræmi við skuldbindingar Íslands gagnvart alþjóðlegum samningum og EES-regluverki. Ráðherra leggi fram frumvarp í samræmi við ályktun þessa svo fljótt sem verða má.“
Tilgangurinn er náttúrlega augljós. Hann er sá sem ég var að fara yfir hér í upphafi, þ.e. að ástæðan fyrir því að okkur hefur vegnað svo vel á 81 ári í lýðveldissögunni er sú að við höfum smátt og smátt náð tökum á auðlindum okkar sem við nýtum á sjálfbæran hátt og okkur sjálfum til hagsbóta.
Tillaga þessi var áður flutt á síðasta þingi og þá í fyrsta sinn. Þetta er þó mál sem ég hef velt fyrir mér talsvert lengi á liðnum árum en umræðan var sú fyrir nokkrum árum að verið væri að gefa öll leyfi til sjókvíaeldis á Íslandi. Þá var verið að bera saman við Noreg, og eins og oft áður var þá verið að bera saman epli og appelsínur, og ekki bara epli og appelsínur heldur bara eitt epli og heilu appelsínukassana. Í Noregi voru menn nefnilega að selja leyfið varanlega og það kostaði morðfé. Á Íslandi eru þetta tímabundin leyfi. Við höfum með öðrum orðum enn tök á því að gefa út tímabundin leyfi og breyta löggjöfinni; þegar þessi tímabundnu leyfi renna út þá geta aðrar reglur gilt. En auðvitað hefðum við ekki farið í þessa uppbyggingu — sem við höfum séð svo glæsilega, en laxeldi í sjó hefur vaxið mjög hratt á Íslandi undanfarin ár og er orðið ein af mikilvægustu útflutningsgreinunum hér á landi, burðarás í atvinnustarfsemi víða á landsbyggðinni, ekki síst á Vestfjörðum og á Austfjörðum.
Að mati okkar flutningsmanna í Framsóknarflokknum er nauðsynlegt að þrengja að eignarhaldinu til að hafa yfirráð, fullveldisréttinn, yfir auðlindinni. Við þekkjum það að til margra ára hefur verið takmörkun á eignarhaldi erlendra aðila í sjávarútvegi. Ég nefndi hér leiðir sem við höfum verið að fara hvað varðar land og hvernig við höfum líka passað upp á orkuna. Þau takmörk sem eru á eignarhaldi erlendra aðila eru byggð á þeirri hugsun að auðlindir landsins eigi að vera undir stjórn innlendra aðila, byggð á fullveldisréttinum. Engin rök standa til annars en að sömu sjónarmið eigi við um þessa auðlind, þ.e. sjókvíaeldi á laxi sem er einnig takmörkuð auðlind.
Ég nefndi Færeyjar hér í upphafi, að taka eigi mið af því sem þar var gert. Í Færeyjum hafa verið settar takmarkanir á erlenda eignaraðild í laxi til að tryggja að helsti ávinningur greinarinnar renni til innlendra aðila og að náttúruauðlindir séu tryggðar í eigu Færeyinga. En það er auðvitað þannig að án aðkomu fjármagns og þekkingar Norðmanna á síðustu árum hefði okkur ekki tekist að gera þetta svona hratt og vel og það sama á við um Færeyjar. Það var líka þannig þar. En það er nú þannig, og við þekkjum það, að peningar eiga líka lögheimili og þeir fara heim til sín þegar ávinningurinn er orðinn hreinn hagnaður. Og þegar árin líða og ávöxtun og ávinningur af þessari starfsemi verður meiri, hreinn hagnaður, þá fer hann þangað sem lögheimili móðurfyrirtækjanna er. Og það er í Noregi, það er ekki á Íslandi. Mér finnst því mikilvægt að við förum að hugsa um þetta nú þegar. Efnahagslegir hagsmunir okkar Íslendinga krefjast þess að laxeldi sé háð ábyrgri stjórnun og eftirliti, þannig að íslenskar auðlindir séu nýttar á sjálfbæran hátt og nýtist þjóðinni sem best, en einnig að fjárhagslegur ávinningur greinarinnar verði notaður til að efla íslenskt samfélag og atvinnulíf og styrkja hinar dreifðu byggðir landsins en ekki í að vaxa á bankabókum þeirra sem fjármögnuðu starfsemina upphaflega. Þeir hafa þá vonandi fengið sitt í gegnum tíðina.
Með því að takmarka erlenda eignaraðild við 25% er dregið úr hættu á að arðurinn af mikilvægri auðlind falli í hendur erlendra fjárfesta sem gætu haft aðrar forsendur en langtímahagsmuni íslensks samfélags að leiðarljósi. Sjónarmið um umhverfisvernd og sjálfbærni, eins og ég nefndi áðan, eru mikilvæg í þessu máli. En eins og við þekkjum þá er staðan sú í dag að stór hluti, eins og var í Færeyjum, þeirra fyrirtækja sem stunda þessa starfsemi við Íslandsstrendur er í eigu erlendra aðila, einkum Norðmanna. Ljóst er að við lagasetninguna þarf að huga mjög vel að hagsmunum þessara aðila svo að þeim verði gefið eðlilegt og hæfilegt svigrúm til að minnka eignarhluta sinn í þessum fyrirtækjum yfir eitthvert tímabil, árabil, þannig að það samrýmist væntanlegum takmörkunum. Að mati okkar flutningsmanna væru fimm ár til að mynda eðlilegur tími í því samhengi en að sjálfsögðu er einnig hægt að skoða lengri tíma. Það er mikilvægt að þetta samrýmist bæði alþjóðlegum skuldbindingum okkar að einu og öllu leyti og EES-samningnum. Markmið lagasetningarinnar verði að tryggja að laxeldi í sjó á og við Ísland verði fyrst og fremst í eigu og undir stjórn íslenskra aðila þegar fram líða stundir. Með því verði stuðlað að sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar til langs tíma, vernd lífríkis og efnahagslegu sjálfstæði landsins. Markmiði þessarar þingsályktunartillögu verði náð með því að breyta lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991, þannig að ákvæði 4. gr. laganna nái einnig til eignarhalds í fyrirtækjum sem stunda laxeldi í sjó hér við land. — Ég hef lokið máli mínu.