157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

eignarhald erlendra aðila á fyrirtækjum í lagareldi.

76. mál
[18:30]
Horfa

Flm. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir vangavelturnar og spurninguna og ég skil hann algerlega. Ég sagði þess vegna að við yrðum að gæta hagsmuna þeirra sem hafa fjárfest hér. Þeir verða auðvitað að fá eðlilega ávöxtun á sína fjármuni. Það er ekki hægt að ganga fram með hvaða hætti sem er þó að við getum horft til þess sem Færeyingar gerðu. Það er alveg rétt að Færeyingar hafa lifað svolítið öðruvísi lífi, eru hluti af Danmörku en ekki af EES-samningnum og geta nánast gert það sem þeim hefur dottið í hug. En það er margt sem við getum bara lært af þeim um það hvernig við gætum hugsanlega verið að móta okkar séríslensku reglur. Í þessu máli er ég bara að bera saman sjávarútvegsauðlindirnar þar sem við erum með ákveðnar takmarkanir og af hverju við getum ekki verið með þær nákvæmlega eins þarna.

Við höfum verið að passa upp á orkuauðlindina og við höfum verið að reyna að passa upp á landið eftir að við sáum í hvað stefndi. Ég segi bara: Ef við gerum það ekki núna þá getur það verið orðið of seint seinna. Ég held að það sé mikilvægt en það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að passa upp á hagsmuni þessara fyrirtækja því að við viljum auðvitað fá erlenda fjárfestingu hér inn og 25% eignaraðild er auðvitað heilmikið. Þegar Norðmenn byggðu upp sitt fiskeldi þá var það gert á norskum forsendum. Síðan eru þetta orðin einhver stærstu fyrirtæki í heimi, gríðarlega stór fyrirtæki, alla vega í matvælaiðnaði, eins og Mowi, og eru komin á hlutabréfaskráningu um allan heim. Þannig fæst aukið fjármagn inn í norskt samfélag. Þeir hafa sjálfsagt ekki lengur neinar áhyggjur af því að þeir séu að missa einhver tök þar, án þess að ég þekki þá umræðu nákvæmlega. En hér er ég bara að segja: Við erum með ákveðna löggjöf í kringum sjávarútvegsauðlindina. Þetta er auðvitað nátengd auðlind og takmörkuð. Af hverju erum við ekki með sömu reglur þar?