eignarhald erlendra aðila á fyrirtækjum í lagareldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans fyrra andsvar. Munurinn er sá að á Íslandi eru þau leyfi sem voru gefin út í sjókvíaeldi til 16 ára í samanburði við að leyfi eru eign í Noregi sem þú getur selt, þú getur leigt, getur gert hvað sem er við. Þetta er bara eign eins og bíllinn þinn. Þú getur gert það sem þér sýnist og til eilífðar. Varðandi orkuna þá held ég að við, allur þingheimur, séum sammála um að við séum stolt af okkar þjóðarorkufyrirtæki, Landsvirkjun. En ekki er þar með sagt að útlendingar eigi ekki hlutabréf í orkufyrirtækjum á Íslandi. Ég held að það séu erlendir hluthafar í HS Orku og mögulega víðar. En grunnurinn er íslenskur í 82% af orkuframleiðslunni hjá Landsvirkjun.
Mig langar kannski að útvíkka þetta, af því að við erum að tala um takmarkaðar auðlindir, og spyrja hv. þingmann: Hefur hv. þingmaður velt því fyrir sér að hann er að tala um sjókvíaeldi þar sem leyfi eru til 16 ára? það er í raun hægt að taka upp kvíarnar og hætta, eða hvað sem menn vilja gera, eftir 16 ár ef ekki er gefið út leyfi. Nú er að byggjast upp mikið landeldi og það er mjög takmörkuð auðlind. Það er á mjög takmörkuðu svæði, á ákveðnum afmörkuðum svæðum, þar sem hægt er að stunda þetta stóra landeldi. Það er ekkert á mörgum stöðum, það er í Kelduhverfi, á Reykjanesi og í Ölfusi sem hægt er að stunda landeldi og er orðin mikil samkeppni um þær lóðir sem eru til útdeilingar, sérstaklega í Ölfusi, þar sem verið er að nota mikla orku, mikið vatn og annað. Finnst hv. þingmanni kannski að þetta ætti þá að eiga við um landeldisfyrirtækin líka þar sem erlendir fjárfestar eru nú þegar farnir að koma inn í hluthafahóp þessara fyrirtækja?