eignarhald erlendra aðila á fyrirtækjum í lagareldi.
Virðulegi forseti. Einmitt vegna þess að við erum með tímabundið leyfi í sjókvíaeldinu finnst mér vera hægt að fara þá leið sem hér er verið að leggja til. Það getur vel verið að umræðan í Noregi, ég þekki það ekki, sé um að þeir hefðu viljað fara þessa leið, ég þekki það ekki. En úr því að þeir tóku þessa afdrifaríku ákvörðun á sínum tíma að bjóða upp leyfin í eitt skipti fyrir öll þá misstu þeir þann möguleika út um gluggann. Ég lít landeldi nokkuð öðrum augum. Ég veit alveg að upp að ákveðnu marki eru möguleikarnir takmarkaðir. Þú þarft mikið af köldu vatni, þú þarft hita og þú þarft landsvæði. En það er nú kannski víðar til staðar á Íslandi þó að hv. þingmaður hafi án efa nefnt bestu staðina. Í þessari tillögu hef ég því ekki verið með landeldi undir enda eru það kannski mannvirki á landi sem eru lokuð og hafa ekki sömu umhverfislegu áhrif og við erum með þegar verið er að sækja á sameiginlega auðlind þjóðar sem verður fyrir því að þurfa að vinna úr úrganginum úr sjókvíaeldinu. Þetta eru lokuð kerfi og þar eru reyndar mjög áhugaverðir hlutir í gangi, að reyna að fara að vinna áburð úr úrganginum sem við getum nýtt í hringrásartilgangi. Ég held að það séu bara spennandi hlutir. Hér er það ekki til umfjöllunar.
Það er mikilvægt að hvetja til fjárfestinga erlendra aðila en í þessu tilviki erum við með takmarkaða auðlind sem er háð ákveðnum umhverfislegum sjónarmiðum, alveg eins og sjávarútvegurinn, alveg eins og orkan, alveg eins og landið og ég held að það væri eðlilegt að við værum með sambærilega löggjöf á því sviði.
Svo vil ég bara nefna undir lokin að það er ákaflega mikilvægt, og ég viðurkenni að mér finnst ríkisstjórnin vera svolítið sofandi í þeim málum, að það þarf hér frumvarp um rýni erlendra aðila, sem sagt rýni vegna fjárfestinga erlendra aðila. Þetta er löggjöf sem er búið að setja í löndunum í kringum okkur. Þetta er löggjöf sem var tilbúin þegar ríkisstjórnin tók við og hún ákvað að bíða með það í vor. En ég sé það ekki komið inn hér á þessum upphafsvikum og mánuðum þessa þings. Þetta er gríðarlega mikilvægt vegna þjóðaröryggis.