dreifing starfa.
Virðulegi forseti. Fyrir hönd átta annarra þingmanna, Gríms Grímssonar, Pawels Bartoszek, Ásthildar Lóu Þórsdóttur, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, Sigurjóns Þórðarsonar, Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, Sigmundar Ernis Rúnarssonar og Þórarins Inga Péturssonar, mæli ég fyrir tillögu til þingsályktunar um söfnun upplýsinga um dreifingu starfa. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að skipa starfshóp sem falið verði að gera tillögur að nauðsynlegum lagabreytingum til söfnunar og vinnslu upplýsinga um landfræðilega dreifingu starfa og skilgreiningu hlutverks og ábyrgðar þeirra aðila sem málið varðar. Starfshópurinn verði skipaður fulltrúum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, félags- og húsnæðismálaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og innviðaráðuneytis, auk þess sem leitað verði til fulltrúa Hagstofu Íslands, Vinnumálastofnunar, sveitarfélaga og annarra fagaðila við mótun tillagnanna. Tillögur verði kynntar Alþingi fyrir 1. júní 2026.“
Tillaga þessi hefur áður verið lögð fram og þetta er í fimmta sinn sem það er gert. Ég flutti hana m.a. á síðasta þingi nú í vor. Mér þótti mikilvægt þá sem nýjum þingmanni Viðreisnar að halda þessu máli á lofti, enda er málið að mínu mati mjög mikilvægt af ýmsum ástæðum og þess vegna flyt ég það hér aftur: Í fyrsta lagi vantar upplýsingar um dreifingu starfa um landið sem og upplýsingar um ferðamynstur fólks milli heimilis og vinnu. Þessar upplýsingar eru m.a. mikilvægar forsendur vandaðrar ákvarðanatöku á sviði samgangna og byggðaþróunar. Þá er töluverð eftirspurn eftir gögnum af þessu tagi meðal fagaðila og hagsmunaaðila í þessum málum. Í öðru lagi myndu upplýsingar af þessum toga auðvelda okkur samanburð við önnur lönd, eins og kemur fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni. Í þriðja lagi er alveg ljóst að vönduð stefnumótun og ákvarðanataka tekur mið af ábyggilegum gögnum, en í dag er hætta á ósamræmi á milli aðila þar sem ýmsar krókaleiðir eru farnar til að áætla fjölda starfa á landsvísu. Raunar er það svo með því fyrirkomulagi sem þekkist í dag þar sem fólk flettir í símaskrám, umreiknar fermetrafjölda atvinnuhúsnæðis í fjölda starfsmanna eða skoðar fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Vegna þessa getur t.d. fjöldi starfa á höfuðborgarsvæðinu verið verulega ofmetinn og við fáum þá ranga mynd af því hversu margir starfa raunverulega á landsbyggðunum. Sem dæmi má nefna hótelstarfsmenn sem allir eru skráðir í vinnu á höfuðborgarsvæðinu því að höfuðstöðvar hótelsins sem þeir starfa hjá eru þar, en þeir eru ekki réttilega skráðir á sínar starfsstöðvar. Það er í raun ótækt að á Íslandi, landi sem ekki telur nema rétt um 400.000 íbúa, sé ekki hægt að svara með neinni vissu hve margir starfa í tilteknu sveitarfélagi, hve margir búa á einu svæði en starfa annars staðar eða hversu hátt hlutfall íbúa starfar nærri heimili sínu.
Virðulegi forseti. Hér á Alþingi eru rædd ýmis mál sem taka mið af ferðamynstri, störfum og búsetu fólks, hvort sem um er að ræða vegasamgöngur á Austurlandi, borgarlínu, eins og hér var verið að ræða, Sundabraut, ferju- og flugsamgöngur, orkuöryggi, sem hér er mikið rætt, vegagerð almennt, snjómokstur, jarðgöng eða dreifingu opinberra starfa á landsvísu. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur kynnt frumvarp um sameiningu sýslumannsembætta með það að markmiði að efla þjónustu um allt land. Gögn, sem tillaga sú sem hér er lögð fram kallar eftir, myndu gefa okkur tækifæri til að meta raunveruleg áhrif frumvarps hæstv. ráðherra og annarra sambærilegra tillagna og frumvarpa sem og að meta hvar þörfin á þjónustuaukningu er brýnust. Sömuleiðis væri hægt að bæta forgangsröðun í fjárfestingum ríkisins í samgöngumálum, auka flæði umferðar og bregðast við fyrirhuguðu álagi með upplýsingum sem fram kæmu eftir svona vinnu. Það eru allt of mörg dæmi um vegi sem hafa setið aftast á samgönguáætlun árum saman sem ekki er ráðist í að endurbæta vegna þess að þingheimur gerir sér hreinlega ekki grein fyrir því hvernig og hversu mikil notkunin á þessum vegum er. Þá gætu upplýsingar sem þessar einnig gagnast fagaðilum sem starfa á sviði samgangna og byggðaþróunar eða fjárfesta sem fjárfesta í verkefnunum á þessum sviðum. Má þar nefna Vegagerðina, Byggðastofnun, Strætó, Hagstofu Íslands, Fyrirtækjaskrá, Ríkisskattstjóra, sveitarfélögin, landshlutasamtökin, háskóla og ráðgjafarfyrirtæki.
Herra forseti. Verkefnið sem þessari tillögu fylgir er stórt og viðamikið. Gagnasöfnun af þessu tagi er þess eðlis að ég tel réttast að skipa þennan starfshóp sem geri tillögu að útfærslu og að í honum sitji þeir aðilar sem ég hef talið hér að framan. Þetta nýtur mikils stuðnings fagaðila, en á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga árið 2023 var m.a. skorað á þingmenn að taka upp þingsályktunartillögu þessa og ganga frá lagabreytingum þannig að hægt væri að hefjast handa við að safna upplýsingum um dreifingu starfa um landsbyggðirnar.
Rétt er einnig að nefna hér jákvæðar umsagnir Byggðastofnunar, Hagstofu Íslands og stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra frá því í vor. Mig langar, með leyfi forseta, að vitna hér í nokkrar umsagnir. Sem dæmi er umsögn frá Byggðastofnun þar sem segir, með leyfi forseta:
„Tekið er undir nauðsyn þess að fyrir liggi upplýsingar um landfræðilega dreifingu starfa enda hagnýtt gildi slíkra upplýsinga ótvírætt, m.a. varðandi stefnumótun og rannsóknir.“ Síðan er bætt við: „Tekið er undir að gögn um landfræðilega dreifingu starfa væru stofnuninni mikilvæg …“
Þá er það umsögn Hagstofu Íslands sem gefur eftirfarandi umsögn, með leyfi forseta:
„Hagstofan styður efni og markmið tillögunnar. Hagstofan hefur fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir upplýsingum um dreifingu starfa og með upplýsingum um staðsetningu starfa eða starfsstöðva verður hægt að greina hvar fólk býr og hvar það sækir vinnu. Slík gögn eru mikilvæg til að greina samhengi búsetu og atvinnu, og stuðla að gagnadrifinni stefnumótun, m.a. í byggðamálum, samgöngum og vinnumarkaðsmálum. Skráning á starfsstöðvum fyrirtækja og dreifingu starfa mun einnig nýtast Hagstofunni við að uppfylla skuldbindingar Íslands í evrópskri hagskýrslugerð.“
Að lokum er hér tilvitnun í umsögn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra:
„Stjórn Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) fagnar því að þessi tillaga hafi verið lögð fram á ný enda skiptir það máli fyrir markvissa vinnu við eflingu byggða um allt land að byggja ákvarðanatöku á skýrum og traustum gögnum.“ Þau halda áfram: „[A]ðgengi að gögnum er forsenda þess að unnt sé að greina raunverulega stöðu, bera saman við önnur svæði, og bregðast við með réttum hætti. Það skapar forsendur fyrir gagnsæi, virkari þátttöku sveitarfélaga og traustri stefnumótun — bæði á landsvísu, í viðkomandi landshlutum og hjá sveitarfélögunum.“
Ég legg til að tekið verði mið af fordæmum annarra ríkja, eins og ég hef áður nefnt, þegar kemur að vinnu og tillögum starfshópsins. Til að mynda í Danmörku heldur fyrirtækjaskrá utan um skráningu starfsstöðva og fjölda starfsmanna á hverri starfsstöð en danska hagstofan sér síðan um úrvinnslu gagna. Þá tel ég brýnt að upplýsingar þessar séu birtar öllum gjaldfrjálst og uppfærðar árlega því að aðeins þannig næst það markmið að stuðla að vandaðri ákvarðanatöku á sviði samgangna og byggðaþróunar.
Virðulegi forseti. Ég legg til að málinu verði vísað til skjótrar og öruggrar meðferðar hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari framlagningu og hugsanlega umræðu og að þingheimur taki áskorun Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og fleiri og klári málið loksins hratt og örugglega.