Störf þingsins.
Frú forseti. Ég verð nú aðeins að byrja á að bregðast við orðum vinkonu minnar í efnahags- og viðskiptanefnd, hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur. Það liggur fyrir að í samsköttun þá ber fólk líka ábyrgð sameiginlega og í engu hefur þessi ríkisstjórn komið inn á það að ábyrgð til að mynda á skattskuldum hvors annars er ekki að falla niður. Þannig að þetta er enginn skattafsláttur, þetta er skattahækkun. Hvort sem fólki finnst þetta réttlætanlegt eða ekki þá er þetta skattahækkun, þetta eru meiri skattar núna en þeir voru.
En það er ekki bara í þessu, það er víða sem virðist vera algjört raunheimarof hjá ríkisstjórninni sem auðveldar ekki störf þingsins. Eitt er sagt en annað gert. Það er sagt það sem kjósendur vilja heyra en svo er eitthvað allt annað gert. Væri ekki nær fyrir ríkisstjórnina að gera bara það sem hún segist vera að gera? Hún segist vera að lækka skuldir. En hver er staðreyndin? Það á að byrja á að auka við skuldir. Landsmenn fá loforð um að það verði hagrætt í ríkisrekstrinum og óskað var eftir hagræðingartillögum. Það komu mörg þúsund tillögur en raunveruleikinn er sá að engin ríkisstjórn fyrr né síðar hefur nokkurn tíma boðað jafn mikil útgjöld og þessi ríkisstjórn. Af hverju er ekki dregið úr útgjöldum? Af hverju er ríkisstjórnin að segjast ætla að gera það en gerir það svo ekki? Þetta er allt svo undarlegt, frú forseti.
Svo er okkur sagt að auka eigi verðmætasköpun en í raunveruleikanum er verið að skattleggja í drep hinar ýmsu greinar. Nýjasta dæmið er ofsköttun á skemmtiferðaskip. Gengið var svo langt að það hefur orðið algjört hrun í komum skipa á næstu árum og hliðargreinar um allt land þurfa að grípa til uppsagna ef þær þá halda lífi. Nei, þá kemur ríkið og skoðar bara aðra hlið peningsins og gerir ráð fyrir að allt haldist óbreytt, sama hversu háir skattar eru lagðir á. Við þekkjum nýju hagfræðikenningu ríkisstjórnarinnar um að stóraukin skattheimta hafi engin neikvæð áhrif. En staðreyndin er sú að það geta ekki orðið auknar skatttekjur af engum tekjum. (Forseti hringir.) Svo vill hæstv. forsætisráðherra sjá langtímasamninga um framlög við samtök eins og Ljósið. (Forseti hringir.) Af hverju er þá ekki gerður langtímasamningur við Ljósið? Ég minni á að þið eruð í ríkisstjórn og þið hafið valdið.