Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag, 15. október, fögnum við 50 árum frá því að efnahagslögsaga Íslands var færð út í 200 mílur. Sú ákvörðun sem ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu, þeir Geir Hallgrímsson og Matthías Bjarnason, var ekki aðeins skref í fiskveiðistjórn Íslands heldur tákn um fullveldi, kjark og langtímasýn. Í kjölfarið hófst þriðja þorskastríðið og síðustu bresku togararnir fóru út úr íslenskri landhelgi 1. desember 1976. Með þessu náðum við yfirráðum yfir auðlindum hafsins og lögðum grunn að lífskjörum sem við njótum enn. Nú 50 árum síðar verðum við að standa vörð um 200 mílurnar með árvekni. Ríkisstjórnin hefur boðað þjóðaratkvæðagreiðslu um skref í átt að Evrópusambandinu fyrir árslok 2027. Ef slíkri vegferð er ætlað að tryggja stöðu Íslands þarf að tala skýrt um kjarnann. Hvað verður um 200 mílurnar og landgrunnið ef gengið er til samninga án varanlegrar undanþágu um full yfirráð Íslands á hafsvæðinu frá 12–200 mílna? Án slíkra trygginga yrði svæðið að sameiginlegu sambandshafsvæði þar sem gilda reglur um hlutfallslegan stöðugleika og rétt annarra þjóða til veiða. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð varið yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins og við tökum þá ábyrgð alvarlega.
Ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að lýsa yfir að engin skref verði stigin sem grafa undan 200 mílunum eða veita öðrum ríkjum hlut í þeim. Ef ríkisstjórnin hyggst hefja viðræður verður hún að setja fram skýrt markmið um varanlega undanþágu, festa hana í samningum og fá samþykki allra. Minna má ekki duga þrátt fyrir að engin fordæmi séu til um slíkt. (Forseti hringir.) Við getum heiðrað fortíðina með fögrum orðum en við heiðrum hana fyrst og fremst með verkum okkar. Við stöndum vörð um 200 mílurnar. Það er ekki aðeins hagsmunamál (Forseti hringir.) sjávarútvegsins, það er hagsmunamál allrar þjóðarinnar.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)