157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:42]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kristjáni Þór Snæbjarnarsyni fyrir þessa góðu og brýnu umræðu um launaþjófnað og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Heilbrigður vinnumarkaður er hornsteinn íslensks samfélags og því er það allra hagur ef okkur tekst að koma í veg fyrir launaþjófnað og draga úr brotastarfsemi. Því miður þá verðum við að viðurkenna, svo ekki sé á móti mælt, að það er vaxandi brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði eins og hv. þingmaður réttilega er að benda á. Sem dæmi má nefna t.d. hið margfræga Wok On-mál. Einnig höfum við séð svokölluðu snyrtistofumálin sem nýverið voru til umfjöllunar í Kveik og var í rauninni ákveðin opinberun og áfellisdómur fyrir íslenskt samfélag. Öll erum við sammála um að stjórnvöld beri alla ábyrgð á að tryggja öryggi og réttindi launafólks í landinu. Með öðrum orðum, þeim ber skylda til að sporna gegn slíkum brotum og draga þá til ábyrgðar sem að þau fremja.

Fyrsta spurning málshefjanda laut að því hvernig ég hygðist tryggja að brot á réttindum launafólks, þar með talið launaþjófnaður, hafi raunverulegar afleiðingar fyrir atvinnurekendur. Mikilvæg skref voru stigin í þá átt þegar lög nr. 105/2024, um breytingu á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði, tóku gildi þann 1. janúar síðastliðinn. Markmið breytinganna var m.a. að styrkja samvinnu stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Í því sambandi hefur verið komið á fót sérstakri samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins. Auk mín eiga sæti í þeirri nefnd forsætis-, fjármála- og dómsmálaráðherra ásamt því að þar eiga sæti Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB, ríkislögreglustjóri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins, Skatturinn, Útlendingastofnun og Vinnueftirlit ríkisins. Þetta er sannarlega risastór nefnd og svo sannarlega ekki ein af þessum nefndum að nafninu til, það eru alveg hreinar línur því nefndin vinnur nú að stefnu- og aðgerðaáætlun sem mun líta dagsins ljós nú fyrir lok árs. Ég vænti þess að með aðgeðrum nefndarinnar munum við ná að stíga risastórt skref í baráttunni gegn brotastarfsemi sem skal útrýmt með öllu og er markmið okkar allra.

Í nefndinni eiga sæti aðilar vinnumarkaðarins beggja vegna borðs sem og fulltrúar stjórnvalda og því bind ég miklar vonir við að tillögur nefndarinnar verði áhrifaríkar og muni komast skjótt til framkvæmda. Í starfskjaralögum er einnig gert ráð fyrir að með sérstökum samningi verði komið á fót samstarfsvettvangi opinberra eftirlitsaðila gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði undir forystu Vinnueftirlits ríkisins. Markmiðið er að efla og samræma eftirlit með því að allir aðilar á vinnumarkaði fari að ákvæðum laga, reglugerða og kjarasamninga. Þessir opinberu aðilar eru Vinnueftirlit ríkisins, lögreglustjórar og Skatturinn en einnig er heimilt að óska eftir aðstoð annarra opinberra aðila. Markmiðið er fyrst og fremst að styrkja samstarf þeirra stjórnvalda sem fara með eftirlit vinnumarkaðarins. Þannig getum við m.a. farið í sameiginlegar eftirlitsaðgerðir, miðlað gögnum á milli, farið í greiningar og haft samráð við aðila vinnumarkaðarins. Þetta er stór þáttur í því að sporna gegn ólíðandi brotastarfsemi.

Næsta spurning málshefjanda laut að því hvort styrkja þyrfti lagaumgjörð gegn skipulögðu vinnumansali og launaþjófnaði. Íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig með fullgildingu alþjóðlegra samninga til að berjast gegn mansali. Í því felst m.a. að beita forvörnum, veita þolendum mansals aðstoð, stuðning og vernd og rannsaka og saksækja í mansalsmálum. Vinnumansal eru alvarlegustu brotin sem framin eru á vinnumarkaði. Slík brot varða við almenn hegningarlög sem falla undir málefnasvið dómsmálaráðherra, lögreglu og ákæruvalds. Reynslan hefur þó sýnt að fá mál fara alla leið í dómskerfinu, eins og hv. þingmaður og málshefjandi réttilega benti hér á. Það hefur verið til umræðu að hugsanlega sé of ríkar kröfur gerðar í mansalsákvæði almennra hegningarlaga í núverandi mynd og erfitt sé að ákæra á grundvelli þess og þess vegna þurfum við bara að breyta því. Það er í okkar höndum.

Í þessu sambandi hefur m.a. verið til umræðu hvort taka mætti betur á vinnumansali eða hagnýtingu vinnuafls í almennum hegningarlögum þrátt fyrir að ekki séu öll skilyrði mansals til staðar. Norðurlöndin eru sum hver með slík ákvæði sem væri hægt að horfa til og mætti sem dæmi líta til ákvæðis um launaþjófnað sem er í norskum hegningarlögum og tók gildi árið 2023. Ákvæðinu hefur þegar verið beitt fyrir dómstóli þar í landi í máli sem varðaði byggingarfyrirtæki sem hélt eftir launum starfsfólks.

Lokaspurning málshefjanda laut að því hvernig ég hygðist beita mér fyrir því að styrkja vinnustaðaeftirlit verkalýðsfélaganna (Forseti hringir.) og efla samstarf við opinbera aðila til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Ég vænti þess að eiga í góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins í baráttunni gegn brotastarfsemi, hvort sem það er í gegnum samstarfsnefndina eða á öðrum vettvangi.

Frú forseti. Ég ætlaði að segja allt of mikið á allt of skömmum tíma en við tökum bara spjallið, ég og hv. málshefjandi, skömmu síðar.