157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:50]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu um launaþjófnað og brotastarfsemi á vinnumarkaði. Ég þakka hv. málshefjanda, Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni, fyrir að hefja þessa umræðu sem er mikilvæg og hefur reyndar þróast svolítið á undanförnum árum.

Ég geri reyndar, frú forseti, athugasemdir við heitið á þessari umræðu. Þarna er talað um launaþjófnað sem er alls ekki réttnefni. Launaþjófnaður er auðvitað einhvers konar orðskrípi sem hefur reyndar fengið örlítinn byr undir báða vængi á síðustu árum. En þetta er raunverulega alls ekki réttnefni og ég bið bara menn aðeins að hugsa það þegar menn eru að fara í umræður og fjalla um einhver mál að nota réttu hugtökin. Þar er ég ekki að gera lítið úr því að menn séu að hýrudraga starfsmenn eða eitthvað slíkt, alls ekki, og á auðvitað að bregðast við slíku. Þar er auðvitað mikilvægast að stéttarfélögin, verkalýðsfélögin, hafi öflug úrræði til að bregðast við og hafa eftirlit með vinnumarkaðnum til að koma í veg fyrir að starfsmenn séu beittir einhvers konar þvingunum eða séu hýrudregnir eða séu látnir vinna á lægri launum en kjarasamningar segja til um. Auðvitað er þetta mjög mikilvægt.

Ég vil einnig benda á það, og kem kannski að því í minni seinni ræðu, að lögreglan hefur lagt mikla áherslu á að rannsaka og komast til botns í mansalsmálum á vinnumarkaði.