157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:54]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka undir með öðrum hv. þingmönnum sem hér hafa talað og þakka fyrir þessa umræðu sem sannarlega er svo þörf og við tölum því miður allt of lítið um hér á Alþingi og almennt bara í samfélaginu okkar. Það var lengi lenska hér á landi að halda að einhvers konar launaþjófnaður eða misnotkun á starfsfólki væri eitthvað sem íslenskt samfélag væri laust við eða væri ekki vandamál hér á landi. Því miður er það öðru nær. Slíkt hefur færst í aukana og er sannarlega orðið vandamál sem mjög brýnt er að taka á og uppræta í okkar samfélagi.

Mig langar að benda á eina birtingarmynd af þessu sem ekki hefur verið mikið rætt um og er því miður að aukast til muna. Það er svokallaður auðkennisþjófnaður eða sala eða leiga á kennitölu. Dæmi eru um að hingað komi einstaklingar innan EES, fái inngöngu í landið, fari í banka, fái íslenska kennitölu, bankareikning, atvinnuleyfi og yfirgefi landið. Í framhaldi er hin nýja íslenska kennitala viðkomandi síðan seld eða hún er leigð t.d. til þriðja ríkisborgara sem hefur ekki atvinnuleyfi eða kennitölu og kemur hingað til lands og fer að vinna á hinni leigðu eða keyptu kennitölu. Viðkomandi einstaklingur hefur ekki yfirráð yfir launareikningi og þarf oft á tíðum að greiða stóran hluta af sínum launum í kennitöluleigu, húsaleigu og fleira tilfallandi. Hann fær því aðeins greitt brot af útborguðum launum og á í raun aldrei möguleika á að borga niður skuldir og er því í raun hálfgerður vinnuþræll vinnuveitanda síns. Slíkur auðkennisþjófnaður, virðulegur forseti, er refsilaus í dag. Því verður að breyta.

Virðulegur forseti. Hér er um að ræða gróft brot á mannréttindum einstaklinga og ég skora á hæstv. ráðherra að ráðast í átak til að uppræta þetta mein í okkar annars ágæta íslenska samfélagi. Þetta hlýtur að vera forgangsmál.