157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:58]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Fólk á yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir það eitt að stela sér mat, þótt ég geri ekki lítið úr þeim glæp. En löggjafinn virðist horfa til hliðar þegar um framfærslu fólks á vinnumarkaði er að ræða og virðist horfa öðruvísi á það þegar framfærslu fólks er kerfisbundið stolið, framfærslu sem á að duga fyrir mat, reikningum, leigu, húsaleigu, lánum, frístundum barna o.s.frv. En meira er stolið. Það eru auðvitað skatttekjur ríkis og útsvar og það er litið mjög alvarlegum augum ef einhver gerir slíkt. Það liggur alveg fyrir, með reynslu og bakgrunn úr verkalýðshreyfingunni, hver upplifun okkar sem þar störfum er, en við höfum barist fyrir því að löggjafinn refsi fyrir slík brot eða setji á sektir eins og févíti og fleira, árum saman höfum við barist fyrir slíku og meira að segja árið 2019 þá sömdum við við stjórnvöld, fengum loforð um að það yrði gerð gangskör í þessum málum og launaþjófnaður yrði gerður refsiverður. Það loforð hefur auðvitað ekki staðist frekar en margt annað sem samið var um í þeim samningum. Árið 2019 gerði stéttarfélagið Efling greiningu á umfangi launakrafna þess og þær námu þá árið 2019 345 millj. kr. Eitt stéttarfélag, 345 millj. kr. Þá hafði málafjöldi aukist, að mig minnir, úr 200 í 700. Þetta er fyrir sex árum síðan.

Í mínum huga er þetta grafalvarlegt mál sem þarf að taka á og það þarf að efna fyrri loforð og ég treysti okkar frábæra ráðherra, Ingu Sæland, til að rjúfa þessa þögn (Forseti hringir.) sem hefur verið um þessa alvarlegu glæpi, þennan alvarlega þjófnað, og bind miklar vonir við að þessi nefnd skili góðum tillögum og ráðherra fylgi málinu vel eftir.