157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[16:01]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég fagna eins og aðrir þingmenn þessari mikilvægu umræðu hér. Það skiptir máli hvernig við tökumst á við þetta alvarlega mál. Ég hef lengi fengið að koma að þeim málum hér á þingi þegar við breyttum lögum um keðjuábyrgð og annað slíkt til að tryggja að ábyrgðarkeðjan væri óslitin í þessu. Þetta snýst því svolítið meira um það hvernig við tökumst á við vandann, upprætum brotin sem eiga sér stað. Það er rétt sem kom fram áðan hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að þetta er ekkert annað en skipulögð glæpastarfsemi og því var mikilvægt að breyta lögreglulögunum til þess að hjálpa okkur að takast á við slíkt. Þar þurfum við að sækja áfram fram. Það sem ég vildi líka bara segja er að eins mikilvægt og það er að takast á við þetta og nálgast málið eins og það er, skipulögð glæpastarfsemi, þá skulum við ekki fara að setja einhverjar aukakvaðir sem gera ekkert annað en að íþyngja þeim fyrirtækjum sem þó eru með þetta á hreinu og skerða samkeppnisstöðuna þeirra enn frekar, af því að fyrirtækin sem gera þetta vel verða líka fyrir miklu erfiðara rekstrarfyrirkomulagi þegar þau þurfa að sæta undirboðum frá fyrirtækjum sem eru að brjóta á starfsfólki sínu. Við getum því ekki refsað þeim tvisvar fyrir það, heldur förum í rót vandans, tökum á þeim sem eru að stunda þessa vondu starfsemi án þess að vera að setja einhverja plástra sem skaða bara þá sem eru með þetta í lagi. Það mun ekki gera neitt við stóra vandann af því að hann er það stór að þeir sem stunda svona ljót brot — þetta eru alvarlegir glæpir og það þýðir engar smá lagabreytingar eða smá eftirlit. Það þarf að taka þetta alla leið og ég heyri ekki annað en við séum öll sammála um það hér í þessum sal í dag.