launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.
Frú forseti. Það er augljóst að skipulögð brotastarfsemi á vinnumarkaði á þessu sviði sem við erum að ræða hér er talsverð. En það má ekki og ég vil vara við því að við séum að tala með þeim hætti að atvinnurekendur séu upp til hópa að hlunnfara sína starfsmenn. Við þurfum aðeins að passa okkur í umræðunni á að fara ekki þangað, eins og mér hefur stundum fundist, að þeir væru bara í því að hlunnfara sína starfsmenn. Ég ætla að byrja á að segja þetta.
Varðandi lögregluna þá hefur hún auðvitað lagt mikla áherslu á mansal á vinnumarkaði undanfarin misseri og annars konar mansal, reyndar líka með auknum mannskap. Það þarf auðvitað að efla þekkingu lögreglunnar og það þarf líka, ef menn telja þess þurfa, að styrkja lagaumhverfi á þessu sviði þannig að lögreglan sé betur í stakk búin, og ákæruvaldið, til að ganga á eftir þessum málum og fylgja þeim alla leið.
Ég ætla að nefna eitt atriði til viðbótar. Það eru dvalarleyfi og atvinnuleyfi hér á landi sem eru veitt á grundvelli sérfræðiþekkingar og eru ansi algeng, held ég. Þau hafa verið misnotuð og ríkisstjórnin hefur talað með þeim hætti, og hæstv. dómsmálaráðherra, að reyna að stemma stigu við þessu. Þess vegna spyr ég bara, frú forseti: Hvað er að frétta af frumvarpi í þá átt að hamla gegn þessari misnotkun sem á sér stað á útgáfu dvalarleyfa á grundvelli sérfræðiþekkingar fyrir þá borgara utan EES-svæðisins?