157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[16:05]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu sem hér á sér stað og málshefjanda fyrir að taka þetta mál á dagskrá. Það er eðlismunur á þessum atriðum sem við erum að ræða um hér; annars vegar mansali og því sem kallað hefur verið launaþjófnaður og hins vegar hreinlega ágreiningi um túlkun á kjarasamningum sem getur verið til staðar í mörgum tilfellum. Við erum ekkert með einhverja forskrift um hvernig eigi að túlka kjarasamninga. Stéttarfélög og atvinnurekendur lenda oft í ágreiningi um það með hvaða hætti eigi að túlka kjarasamninga.

Það sem liggur sannarlega fyrir er að eftir því sem erlendu einstaklingum hefur fjölgað á vinnumarkaði þá hefur þessum málum fjölgað. Ég þekki það, við erum hér nokkrir sem hafa verið starfandi innan verkalýðshreyfingarinnar og við fundum það alveg þegar ferðaþjónustan fór á fleygiferð að bunkarnir bara hrúguðust upp. Við erum að fá til landsins erlent vinnuafl sem þekkir ekki íslenska kjarasamninga og jafnvel treystir ekki stéttarfélögum. Þau koma kannski frá löndum þar sem verkalýðshreyfingin er bara spillt, mafían í einhverjum tilfellum ræður stéttarfélögunum. Margir atvinnurekendur sem hafa ætlað að njóta góðs af góðærinu hafa fengið til sín vinnuafl, reiknað það kannski inn á jafnaðarkaup, sem er ekki til í kjarasamningum, af því að það á að vera eitthvert meðaltal dagvinnu, eftirvinnu, næturvinnu. Svo er fólkið látið vinna næturvinnuna á jafnaðarkaupi. Þetta er bara brot á kjarasamningum og þetta er m.a. atriði sem (Forseti hringir.) heildarsamtök á vinnumarkaði verða að sameinast um að laga, ekki bara stéttarfélögin, heldur atvinnurekendasamtökin líka.