hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.
Frú forseti. Aftur vil ég þakka fyrir þessa góðu umræðu og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir þessa góðu fyrirspurn. Já, það er alveg rétt, ég er ekki hreyfihömluð en ég er lögblind og ég er litblind, staurlitblind, þannig að ég hef staðið í því ítrekað að koma í opinberar stofnanir hér þar sem eru hangandi skilti með númerum á og ég hef aldrei séð hvaða númer það er vegna þess að þar eru rauðir stafi á svörtum grunni og litblindir sjá það ekki neitt. Þannig að ég þarf alltaf að segja: Fyrirgefðu, geturðu sagt mér hvaða númer er þetta nú aftur, hvað segið þið? Núna get ég alveg gert það skammlaust en áður, áður en ég varð svona rosalega góð með mig og full af sjálfstrausti, þá leið mér mjög illa undir þessum kringumstæðum. Ég hef verið með fatlaðan bróður minn sem ég hef þurft að koma til aðstoðar og fylgja honum inn í fyrirtæki á Laugavegi. Hann er mjög fatlaður til gangs og ég hef labbað með hann fleiri hundruð metra þannig að ég veit þetta vel, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir. Ég veit líka hvar mitt verksvið liggur. Ég ræð ekki yfir skipulagsmálum borgarinnar en ég hef mína sterku rödd og mín völd til að gera betur og það mun ég sannarlega gera. Þess vegna kom ég með þessa reglugerð núna sem í rauninni kemur í veg fyrir að fólk þurfi að ferðast meira en 25 metra í lengsta lagi til þess að geta komist til síns heima í hjólastólum eða hvernig sem það er. Það er líka sláandi að heyra það þegar við erum að byggja hér opinberar stofnanir og annað slíkt þar sem við tökum ekki einu sinni tillit til þess að hér sé fatlað fólk.
Ég hef alltaf sagt það að fatlað fólk á sama tilverurétt og allir aðrir í þessu samfélagi. En mér þykir líka miður að ekki skuli vera meira tekið utan um samning Sameinuðu þjóðanna sem mun tryggja það að allir fái að njóta þeirra réttinda sem okkur er í rauninni skyldugt að veita þeim. Í samráði við alþingismenn, Öryrkjabandalagið, hagsmunaaðila og borgaryfirvöld, sem við erum búin að vera í heila fimm mánuði með í borgarstjórn, þá munum við að sjálfsögðu gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að fólkið okkar sem þarf á því að halda að geta farið leiðar sinnar í okkar góðu borg sé ekki látið sitja eftir án þess að geta komist leiðar sinnar. Það liggur algjörlega fyrir.
Ég segi aftur: Takk fyrir ykkur. Þetta var frábær umræða.