157. löggjafarþing — 17. fundur, 15. okt. 2025.
tilkynning forseta.
Forseti vill geta þess áður en tekið er fyrir 4. dagskrármálið, að hér er um að ræða fyrirspurnafund, líklega þann fyrsta á þessu kjörtímabili. Það virkar sem sagt með þeim hætti að það er fyrirspyrjandi sem tekur fyrst til máls, síðan ráðherra. Aðrir þingmenn geta blandað sér í umræðuna biðji þeir um orðið áður en fyrirspyrjandi tekur til máls öðru sinni.