157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[17:05]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka framsögumanni meiri hlutans fyrir sitt erindi og þátttöku í umræðum hér. Ég tel að við séum flest sem erum hér inni sammála um að þegar kemur að afskiptum hins opinbera, rekstri einkarekinna fjölmiðla, þurfi að gæta varúðar, eins og kom fram í máli þingmannsins, að jafnræðis að armslengd sé ávallt gætt, að reglurnar séu formbundnar en ekki efnisbundnar, af því að við viljum ekki að stjórnvöld, hvort sem það er framkvæmdarvaldið eða þingmenn, hafi ítök eða áhrif á ritstjórnarstefnu fjölmiðla í landinu. Það er forsenda lýðræðislegs samfélags að fjölmiðlarnir hafi frelsi, getu og styrk til að segja þær fréttir sem segja þarf og veita stjórnvöldum aðhald. Vandamálið er hins vegar, sem birtist nákvæmlega hér, að það er verið að taka þessar reglur og færa ákvörðunina hingað inn í sal Alþingis með því að lækka þennan þröskuld úr 25% í 22%. Það er óhjákvæmileg afleiðing þessa frumvarps að það mun hitta fyrir tvo stærstu fjölmiðla landsins. Því vil ég spyrja hv. þingmann annars vegar: Hvernig var þessi prósentutala ákveðin? Hvers vegna var ákveðið að fara niður í 22% en ekki 20% eða 18% eða 24%? Hvernig var prósentutalan ákveðin? Og svo hins vegar: Núna þegar fyrir liggur að til stendur að endurskoða styrkjakerfið, að fara í stærri endurskoðun á kerfinu, hvers vegna þarf þá að fara í þessa aðgerð, sem hittir þessa tvo fjölmiðla fyrir, akkúrat núna?