157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[17:14]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Sigurður Örn Hilmarsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Auk mín skrifa undir álitið hv. þingmenn Jón Pétur Zimsen og Snorri Másson. Það eru eins og ljóst má vera skiptar skoðanir innan þings og svo sem í samfélaginu öllu um hvernig eigi að bregðast við þeirri stöðu sem er uppi á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Rekstrarumhverfi fjölmiðla er mjög þungt og það hefur þyngst á undanförnum árum. Ástæður þess eru margþættar og þar má fyrst nefna annars vegar fílinn í postulínsbúðinni, RÚV, Ríkisútvarpið, sem er auðvitað langstærsti aðilinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði og nýtur algerrar sérstöðu sökum þess að hann nýtur fjárframlaga frá ríkissjóði og hefur þar að auki heimildir til að afla sér tekna af auglýsingamarkaði í beinni samkeppni við einkarekna fjölmiðla. Rekstrarumhverfið er mjög þungt og það birtist til að mynda með þeim hætti að starfsmönnum einkarekinna fjölmiðla hefur fækkað um 69% frá árinu 2008, úr 2.040 manns í 640. Fólkinu sem vann við það að segja íslenskum almenningi fréttir af stjórnmálunum, af hversdagslífinu, af íslenskri menningu hefur fækkað um tvo þriðju. Það er tæplega einn af hverjum þremur af þessum starfsmönnum eftir. Það er númer eitt. Þetta kemur til af hagræðingaraðgerðum sem þessir fjölmiðlar hafa þurft að ráðast í, m.a. sökum þess að hlutdeild innlendra einkarekinna fjölmiðla í auglýsingatekjum hefur minnkað um 39 prósentustig, úr 81% árið 2009 niður í 42%. Þessa þróun má rekja til þess að erlendir miðlar, fyrst og fremst erlendir samfélagsmiðlar, hafa sótt mikið inn á þennan markað en hlutdeild þeirra fór úr 4% upp í 49% yfir tímabilið. Það er ekki eingöngu þannig að innlendir einkareknir fjölmiðlar glími við skakkar samkeppnisaðstæður þegar kemur að ríkisfjölmiðlinum sjálfum heldur líka þessum erlendu aðilum, enda lúta þeir ekki sömu takmörkunum þegar kemur að miðlun efnis, hvort heldur sem er eigin efnis eða birtingu á auglýsingum og öðru slíku, þannig að staðan er sú að af heildartekjum fjölmiðla hefur RÚV 27% tekna á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Hlutfallið er að jafnaði 10% á öðrum Norðurlöndum. Ríkisútvarpið er eini norræni ríkismiðillinn sem er fjármagnaður með opinberum framlögum og á sama tíma í virkri samkeppni við einkaaðila þegar kemur að auglýsingatekjum.

Í stað þess að ráðast að þessari stöðu sem ég hef hér lýst, ráðast að rót vandans, höfum við komið upp þessu styrkjakerfi til einkarekinna fjölmiðla. Það er auðvitað mjög mikilvægt og rétt, eins og kom fram í ágætri ræðu framsögumanns meirihlutaálitsins, að öllu skiptir að slíkar reglur séu hlutlægar, þær séu formbundnar, akkúrat til þess að minnka líkur á þessum freistnivanda sem felst í því þegar ríkisvaldið er farið að hafa afskipti af fjölmiðlum vegna þess að jafnvel góðar hugmyndir, og líka slæmar hugmyndir, en hugmyndir eins og þetta styrkjakerfi geta nefnilega reynst óheppilegar og áhættusamar vegna þess að þar getur komið upp þessi vandi: Hvenær fara stjórnmálamenn að misbeita valdi sínu til að hafa áhrif á þá umfjöllun sem þeim mislíkar? Svona aðfarir eða aðgerðir eru réttlátar. Þeim er teflt fram af góðum hug þar sem menn tala sig niður á að nauðsynlegt sé að stemma stigu við einhverju og það svo sem birtist hér því miður snemma á þessu ári þegar ný ríkisstjórn tekur við og sætir þessu aðhaldi sem fjölmiðlum er ætlað að veita þeim.

Það er kannski rétt að geta þess að í tíð síðustu ríkisstjórnar voru kynnt fyrir borgurunum í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi sem mælti fyrir um þriggja ára framlengingu á núgildandi kerfi með sömu prósentum, með sama hámarksstyrk og hafði verið, þetta var uppleggið, en náðist ekki að klárast í tíð síðustu ríkisstjórnar. Svo kemur ný ríkisstjórn og tekur við og sætir akkúrat þessu aðhaldi og þá byrjar einmitt gagnrýnin sem laut eins og flest okkar muna að málefnum sem eru stjórnmálamönnunum sjálfum mjög viðkvæm og lýstu kannski þá líka þeim, ég ætla að segja ofsakenndu viðbrögðum þeirra sem gagnrýnin laut að. Þá er ég að tala um þessa umræðu um styrkveitingar til einstakra stjórnmálaflokka án þess að skilyrði laga væru uppfyllt. Þetta er ekki eitthvert smámál, þetta var risamál og varðaði spurninguna um hvort viðkomandi stjórnmálaflokkur, Flokkur fólksins, þyrfti að endurgreiða 240 milljónir sem er slík fjárhæð að það varðar gjaldfærni flokksins sjálfs og tilveru. Þetta eru þannig atriði. Það var verið að finna að hagsmunaskráningu einstakra stjórnarliða. Þetta eru svona atriði sem særa þann sem á þarf að hlýða og viðbrögðin voru, eins og ég lýsti hér fyrr í dag, að mínu viti óheppileg og ég notaði orðið ömurleg. En þarna kemur sem sagt fram sá vilji eða ásetningur einstakra stjórnarliða að endurskoða fjárframlög til Morgunblaðsins. Því var lýst yfir að endurskoða einfaldlega fjárframlög til Morgunblaðsins. Þetta var uppleggið og því var enn fremur lýst yfir eins og haft var eftir þessum stjórnarliða að Flokkur fólksins ætlaði að taka á þessu af hörku. Þetta var uppleggið á þessum tíma eftir að fréttir höfðu verið sagðar af fjármálum þessa stjórnmálaflokks í febrúar á þessu ári.

Þá hlýtur spurningin að vakna: Hvað gerist svo? Þá komum við akkúrat að þessu frumvarpi. Hér er verið að mæla fyrir því að minnka styrki til tveggja fjölmiðla í landinu, þeirra stærstu, Sýnar og Árvakurs. Hérna er verið að mæla akkúrat fyrir því sem þessi stjórnarliði hótaði og þetta lítur einfaldlega illa út. Það er kannski það sem við í 1. minni hluta erum að benda á. Við leggjumst gegn samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd og teljum að framgangur þess sé síst til þess fallinn að auka sjálfstæði fjölmiðla og möguleika þeirra til að veita stjórnvöldum og öðrum valdhöfum nauðsynlegt aðhald heldur þvert á móti hafi frumvarpið þá ásýnd að verið sé að senda gagnrýnum fjölmiðlum með þróttmikla starfsemi skilaboð um að óánægja ríki með störf þeirra af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Í frumvarpinu er þessi aðgerð, sem hittir bara þessa tvo fjölmiðla fyrir, réttlætt í grunninn með tvennum hætti, í fyrsta lagi að borið er saman kerfi sem er allt öðruvísi, um endurgreiðslu útlagðs kostnaðar við kvikmyndagerð og sá samanburður einhvern veginn rennur út, enda er það líka þannig nákvæmlega þar að stærri verkefni fá hærra hlutfall þeirrar endurgreiðslu sem til stendur til boða í því kerfi. Svo er þessi samanburður, ef samanburð mætti kalla, um aðstæður á hinum Norðurlöndunum en í fullkomnu tómarúmi við þá sérstöðu sem Ríkisútvarpið er í hér á landi að njóta — mig minnir að það séu eitthvað í kringum 7 milljarðar á ári til viðbótar við þær auglýsingatekjur sem það getur aflað þannig að samanburðurinn þarna er villandi í reynd.

Þá komum við að því að markmið frumvarpsins er sagt vera að styðja með fyrirsjáanlegum hætti við einkarekna fjölmiðla. Í því felst einmitt þetta, einskiptisheimild til styrkveitinga sem rennur út næstkomandi áramót og felur í sér þessa lækkun á hámarksstyrk. Í greinargerð með frumvarpinu kemur einmitt fram að yfir standi vinna við endurskoðun á kafla laganna um stuðning við einkarekna fjölmiðla sem upphaflega átti að leggja fyrir á haustþingi en hefur nú verið frestað fram á vorþing. Þá hefur ráðherra boðað endurskoðun á heimildum Ríkisútvarpsins til birtingar á auglýsingum. Ég tel að þessi áform, séu þau skynsamlega útfærð, séu mun frekar til þess fallin að styrkja sjálfstæða og öfluga fjölmiðlun í landinu, lýðræðislega umræðu og íslenska menningu.

Af þessum sökum og í ljósi líka þeirrar tímapressu sem hefur verið á afgreiðslu málsins — það kom svo sem berlega í ljós í umræðum fyrir nefndinni og var einhugur um það innan nefndarinnar að mikilvægt væri þó að klára það svo unnt væri að auglýsa eftir styrkjunum og afhenda á þessu ári, töluverð tímapressa á málinu, en í ljósi þeirrar endurskoðunar sem er yfirvofandi, í ljósi þeirrar tímapressu sem er á málinu, í ljósi þess að uppleggið er að framlengja núverandi kerfi, leggst 1. minni hluti harðlega gegn lækkun þessa þaks hámarksstyrkja því að við viljum ekki að þingið sendi þau skilaboð að fjölmiðlum hefnist fyrir að veita stjórnvöldum aðhald, sérstaklega í ljósi umræðunnar um pólitískan þrýsting á ráðherra málaflokksins. Þetta er allt mjög óheppilegt. Þess vegna leggjum við til að gerð verði breyting á 1. mgr. f-liðar 2. gr.: Í stað 22% komi hlutfallstalan 25%.

Nefndinni bárust margar góðar umsagnir. Ég vil vekja líka sérstaka athygli á því að auðvitað gagnrýna þessir fjölmiðlar sem skerðingin hittir fyrir breytinguna en það gerir einnig Blaðamannafélag Íslands og bendir einmitt á það sem við erum að nefna hér í nefndaráliti 1. minni hluta, að það sé ótímabært að ráðast í þessa breytingu að lækka hámarksstyrkina þegar breytingin á eingöngu að gilda tímabundið í eitt ár og þessi stærri endurskoðun er handan við hornið.