fjölmiðlar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Nei, að sjálfsögðu er það ekki markmið í sjálfu sér að ríkið sé að endurgreiða kostnað sjálfstæðra fjölmiðla í landinu. Það er mjög óheppilegt og slæmt í alla staði og gildir þá einu hvort það sé 0% eða 25% eða 50%. Það er mjög óheppilegt og ég tel að það hafi komið ágætlega fram, ég alla vega reyndi að tjá það í framsögu minni, að verkefnið er einmitt þetta. Umhverfið sjálft er svo erfitt, m.a. sökum aðgerða ríkisvaldsins sem er að styðja við þennan risa á markaði sem sogar til sín tekjurnar, starfsfólk og neytendur, áhorfendur, og nýtur sérkjara. Það skýtur svolítið skökku við, finnst mér, að hér sé verið að finna að því að það sé of hátt að 25% af þessum styrkjum — þetta voru 550 milljónir á síðasta ári, 25% af því eru 123 milljónir sem Sýn og Árvakur fengu. Það skýtur svolítið skökku við að hv. þingmaður spyrji hvort þetta sé ekki allt of hátt þegar hann sér ekkert að hinu, en það væri kannski áhugavert að spyrja þingmanninn út í það: Telur hann að það þurfi að gera eitthvað í þessum 7 milljörðum sem Ríkisútvarpið er að fá? Að sama skapi vil ég spyrja hvort breyta þurfi heimildum Ríkisútvarpsins þegar kemur að því að afla tekna á auglýsingamarkaði.