fjölmiðlar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ítreka bara það sem ég sagði áðan að það er ekki markmiðið að styðja við ríkisstyrki til fjölmiðla hér á landi, hvorki um 25% eða 22%. Allt ætti þetta svo sem að liggja fyrir og gerir það, að ég tel, einfaldlega í nefndaráliti 1. minni hluta. Þá skal ég bara ítreka það sem ég nefndi í minni framsögu: Ástæðan fyrir því að ég tel þetta upplegg meiri hlutans óheppilegt er þessi ljóta ásýnd málsins. Það er ekkert annað en traustið að baki orða hv. þingmanns sem ræður því hvort fólk trúir því sem þingmaðurinn segir, hvort ég geri það eða ekki. Það er ásýnd málsins sjálfs sem er svo slæm. Hér er lagt upp með það að lækka styrki til einstakra fjölmiðla og svo er það gert. Það kann að vera fullkomin tilviljun og það kann að vera að það hafi staðið til í nokkurn tíma. En svona birtist þetta. Svona birtist þetta borgurunum og það er óheppilegt þegar grundvallarmarkmið frumvarpsins er einmitt að styðja og efla frjálsa fjölmiðlun í landinu. Það er í orði kveðnu en svo birtist bara nákvæmlega þetta, að hér er verið er að lækka fjárframlög til fjölmiðla sem hafa sætt ómaklegri gagnrýni af fulltrúum meiri hlutans.