fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræður um málið hér í dag. Þetta hefur svo sem lengi verið til umræðu og baksagan er þessi sem vísað hefur verið til, að þessi ákvörðun um að lækka þakið úr 25% í 22% kemur augljóslega bara niður á mjög tilteknum miðlum. Það er gjörsamlega fyrirséð hver afleiðingin er og líka fyrirséð hvaða skilaboð það sendir, að fara gegn þessum miðlum, sem eru þá í raun og veru bara tveir núorðið sem sinna þessum daglega fréttaflutningi allt árið um kring til hliðar við risann á markaðnum, og auðvitað fílinn í herberginu, sem er Ríkisútvarpið. Þarna, alveg óháð því hvaða sjónarmið liggja í raun og veru að baki, eru bara einfaldlega skýr skilaboð um að þessum miðlum er naumar skammtað og hinum þá meira.
Hverjir eru þá hinir? Þar er vísað til landsbyggðarsjónarmiða um að efla beri miðla á landsbyggðinni vegna fréttaöflunarsjónarmiða í héraði, sem er sannarlega sjónarmið sem er að hluta til — og kannski eru þetta bara pólitísk klókindi eða á að vera eitthvað slíkt því að það er auðvitað erfitt að mæla gegn því að menn styðji við slík markmið enda eru þau í sjálfu sér ágæt. Kannski verðum við að horfast í augu við það að í samhengi þessa fjölmiðlastyrks þá hafa byggðasjónarmið ekki endilega alltaf verið markmið fjölmiðlastyrksins. Það hefur verið mjög afmarkað lýðræðislegt sjónarmið í þessu að lagfæra rekstrarumhverfi einkamiðla með þessu, sem er ákveðin tilraun sem ég er ekki viss um að gangi upp eða muni ganga upp vegna þess að eins og varað hefur verið við allan tímann og sömuleiðis eins og nú hefur komið á daginn, þá er þetta óheppilegt fyrirkomulag einfaldlega af margra hluta sökum.
Ég átti og rak fjölmiðil þar til fyrir skemmstu og þekki rekstrarumhverfi fjölmiðla mjög vel og hef starfað í því alla tíð. Það er sannarlega erfitt og verður erfiðara og erfiðara með hverju árinu. Þessir styrkir eins og þeir eru núna finnst mér ekki stuðla að mikilli nýsköpun í greininni, og það er svo sem umræðuefni fyrir síðari tíma heildarendurskoðun sem á að fara fram von bráðar, vegna þess að rekstrarumhverfi fjölmiðla er líka brennt því marki að auglýsingatekjurnar eru að fara. Áskriftartekjurnar eru líklega málið en ókeypis efni á netinu er svo mikið að það er mjög erfitt að keppa við það. Upplýsingar eru einfaldlega ódýrar, þær eru búnar að lækka í verði, bara upplýsingar almennt og það er náttúrlega það sem maður leitar að í dagblaði, þannig að samkeppnisumhverfið er allt gjörbreytt.
En í framtíðinni held ég að verði miklu minni yfirbygging og miklu minni kostnaður. Ég horfi t.d. á Ríkisútvarpið — sem hv. þingmaður segir að sé ekki hluti af þessari umræðu, að sjálfsögðu er það alltaf hluti af þessari umræðu — sem er með 6 milljarða í meðgjöf frá stjórnvöldum og frá hinu opinbera og svo fær það einhverja 2–2,5 milljarða í auglýsingatekjur. Að mönnum takist að skila ársreikningi með rekstrarhalla með svona tekjur er mér algjörlega lokuð bók. Ég get bara ekki áttað mig á því hvernig er ekki hægt að sjá svokölluð hagræðingartækifæri í hverju horni þegar menn eru með fleiri milljarða, nánast 10 milljarða í tekjur í heildinni. Ég held það séu orðnir rúmlega 9 milljarðar sem Ríkisútvarpið hefur í heildartekjur. Að menn haldi því síðan fram þegar við berum hér lausnina á borð að hluta til sem raunverulega leysir hluta þessa vanda, að það sé ekki hægt að sneiða 2–3 milljarða, eða 3–4 þess vegna, af RÚV, eða 4–5, að mínu mati, sneiða hluta af þeim tekjum og ráðstafa þannig að fólk geti haft frelsi um ráðstöfun fjármunanna, rétt eins og með trúfélög og annað eins. Að menn haldi þessu fram — það getur varla verið að menn séu að tala af fullum heilindum þegar þeir tala um að RÚV megi ekki sjá af slíkum milljörðum af því að RÚV getur það. Það liggur fyrir. Það sjá það allir sem eru í þessu umhverfi. Það vita það margir innan RÚV, það vita það margir hér að auðvitað gætu þeir séð af þessum milljörðum og það sæi ekki högg á vatni. Menn myndu bara gera breytingar, fella burt einhverja þætti í starfseminni.
Ég hef nú verið með hagræðingartillögur hérna í þinginu. Það mætti ganga mun lengra. Það er ýmis tímaskekkja þarna sem er engin þörf á og er enginn markaðsbrestur með. En menn vilja það ekki. Menn vilja halda í það sem þeir kalla sterkt almannaútvarp þegar þeir eru að reka áróður um sig en er auðvitað ríkisútvarp. Það er ríkisvaldið sem er að stunda þarna langumfangsmestu fjölmiðlunarstarfsemi á landinu. Menn vilja halda í það og þá er það gott og vel. En menn verða þá að fallast á að það er einfaldlega vilji þeirra að hafa stóran fjölmiðil undir stjórn ríkisvaldsins og á þessum síðustu og verstu tímum hafa þeir líka gengist við því að þeim finnst í sjálfu sér ekkert athugavert við það að það sé veruleg, auðsjáanleg og í raun og veru hrópandi pólitísk slagsíða í miklum hluta starfseminnar hjá Ríkisútvarpinu. Menn bara gangast við því, synda í því eins og fiskar í vatni í Samfylkingunni, fallast bara á þetta. Þetta þjónar þeim og þeim finnst þetta bara gjörsamlega eðlilegt.
Svo kem ég hér og spyr hæstv. ráðherra um það hvað honum þyki þegar einn allra mest áberandi fjölmiðlamaður Ríkisútvarpsins talar um að Ríkisútvarpið gegni sérstöku hlutverki í raun og veru vegna þess að það sé svo mikilvægt í ljósi „uppgangs þjóðernisíhaldssinnaðra lýðskrumara“, tekur þá þarna út fyrir sviga ákveðna pólitíska hugsun sem er vel að merkja lögleg enn þá. Það má vera með þjóðernislegar áherslur. Það má vera íhaldssamur. Þetta er allt saman eðlilegt. Það er ekkert óeðlilegt við að þetta sé hluti af okkar pólitík. En þarna fer einn mest áberandi fjölmiðlamaður Ríkisútvarpsins og segir að Ríkisútvarpið skipti sérstöku máli vegna uppgangs ákveðinna pólitískra sjónarmiða. Og þegar maður kallar eftir því að menn taki afstöðu til þessa, hvort þetta sé þá líka í hugum ráðamanna hérna, hlutverk Ríkisútvarpsins, þá skorast þeir undan og neita að svara því. Einhvern tímann var nú sagt: Þögn er sama og samþykki. Og maður vonar að það eigi ekki við um þetta, maður vonar það. Þannig að maður getur nú sannarlega farið á flug um það.
Þetta er bara eitt af mörgum dæmum um það hvernig Ríkisútvarpið er pólitískt. Menn eru búnir að sætta sig við það. Menn eru ánægðir með það. Menn telja þá greinilega að mögulega þjóni það þeirra hagsmunum. Það er þá gott og vel. Óskandi væri að menn kæmu til dyranna eins og þeir eru klæddir með það en létu ekki eins og þarna væru einhverjir almannahagsmunir í húfi. Ekki væri þeim síður þjónað, þessum almannahagsmunum, ef almenningur fengi að ráða ráðstöfun útvarpsgjaldsins, eins og hefur verið lagt til og væri hægur leikur að breyta í einu vetfangi hér á Alþingi ef menn hefðu raunverulegan áhuga á því að bæta upp markaðsbrestinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði með lýðræðislegum hætti.
Þetta frumvarp er undarlegt. Það er boðað að hér eigi ekki að senda nein sérstök skilaboð með þessu en þau eru augljós og þau blasa við. Á sama tíma er gert, eins og svo oft í störfum þessarar ríkisstjórnar; vont mál lagt á borð og það afsakað með því að til standi að fara í heildarendurskoðun. Miðað við hvernig störfin hafa verið á sviði fjölmiðlunar hingað til þá hræða sporin og maður bindur kannski ekki vonir við meiri háttar framfaraskref í þessari heildarendurskoðun heldur líklega frekar orðasalat um hitt og þetta sjónarmið. En í raun og veru er niðurstaðan alltaf sú sama; að halda óbreyttu ástandi. Raunverulega frjáls markaðsfjölmiðlun deyr að lokum drottni sínum ef allt fer á versta veg, rekstrarskilyrði versna með ári hverju og ríkisvaldið heldur nú áfram að sneiða af þeim, sem er undarlegt, þótt maður sé í prinsippinu ekki sérlega fylgjandi þessum styrkjum.
Ég hef lagt fram aðra tillögu, aðra nálgun sem ég tel að geti virkað mjög vel án þess að neikvæð áhrif sjáist í rekstri Ríkisútvarpsins, þótt þau mættu í sjálfu sér sjást. Það þarf að skera burt ákveðna þætti úr þeirri starfsemi en það er ekki vilji fyrir því hjá hæstv. ríkisstjórn og þá verður svo að vera.