fjölmiðlar.
Herra forseti. Það kemur nokkuð á óvart að hv. þingmenn í Miðflokknum, sem tala mjög um að það sé ekki gætt nægjanlegs aðhalds í ríkisfjármálum, skuli leggja fram tillögu um að þessi upphæð, styrkveiting, sé óbreytt og þar að auki að hún renni frekar á færri aðila þannig að þakið sé hærra en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Það kemur svolítið á óvart að þau skuli leggja metnað sinn í þetta mál í ljósi þeirrar umræðu sem hefur verið höfð uppi í þessum ræðustóli að það eigi að gæta aðhalds. Sjálfur hef ég verið um árabil á móti umræddum styrkjum til einkarekinna fjölmiðla, þá sérstaklega til þeirra fjölmiðla sem eru augljóslega ekki reknir á rekstrarlegum grunni, þ.e. einkareknir fjölmiðlar sem eru um árabil reknir með tapi og svo eru hagsmunasamtök í samfélaginu sem gera greinilega viðkomandi fjölmiðla út til að ná fram og tryggja áhrif sín í samfélaginu. Ég held að við verðum einnig að horfa á þann þátt málsins. Síðan er auðvitað ljóst að fjölmiðlun úti á landi stendur höllum fæti og þessi örlitla breyting færir þá aðeins örlítið hærri upphæð til þeirra fjölmiðla.
Auðvitað færi best á því að draga RÚV út af auglýsingamarkaði og taka þessa styrki af. Það hefur verið mín afstaða um árabil en einhverra hluta vegna hefur það ekki skilað sér út í umræðuna heldur hafa þingmenn úr stjórnarliðinu jafnvel tekið þá umræðu upp sem einhver óheppileg viðhorf. Mér finnst það einkennilegt. Ég er einfaldlega á því að það eigi að taka þessa styrki af og síðan minnka hlutdeild RÚV á auglýsingamarkaði.