157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:11]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætlaði nú ekki endilega að fara fram á það að hv. þingmaður miðlaði málum meðal stjórnarliða. Það er engu að síður þörf á að vekja athygli á því að þetta er ekkert ný afstaða. Þetta er afstaða sem ég flutti hér í þinginu 1. júní 2023 þar sem ég fór rækilega yfir hana. Jú, mér finnst það koma til greina að miðla hluta af útvarpsgjaldinu þannig að fólk hafi eitthvert val. En auðvitað eru ýmsar hliðar á þessu og ég held að menn geti ekki komist hjá því, hvort sem menn eru í Sjálfstæðisflokknum, Miðflokknum eða einhverjum flokki sem tala hérna um og jafnvel gefa í skyn að menn séu að reyna að hafa áhrif á umræðuna, að ræða líka hlutina út frá þeim staðreyndum að það eru ákveðnir miðlar reknir með halla ár eftir á til að fleyta ákveðnum sjónarmiðum áfram. Við getum bara horft á það hvernig sumir fjölmiðlar voru í veiðigjaldafrumvarpinu þar sem það var allt að fara til fjandans ef það frumvarp yrði samþykkt. Við sjáum að öflug hagsmunasamtök eru jafnvel komin með sína fulltrúa í stjórn víða og þá vil ég nefna hitt stóra fjölmiðlafyrirtækið, Sýn. Þetta þurfum við auðvitað að ræða af hreinskilni, fara yfir hlutina. Það er auðvitað best ef við náum því fram að fjölmiðlar séu starfræktir á rekstrarlegum grunni þannig að menn hafi einhvern hag af því að hafa trúverðugleika, hafa lesendur sem greiða fyrir aðgang að efni blaðsins og auglýsendur sem eru tilbúnir að auglýsa í blaðinu en það sé ekki þannig að það sé rekið um árabil með tapi og síðan eru einhver hagsmunasamtök eða auðmenn úti í bæ sem greiða fyrir umræddan kostnað, herkostnað, af fjölmiðluninni.