157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:14]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talaði um hagsmunaaðila og fjölmiðla og ég held að allir átti sig á hvernig landið liggur í fjölmiðlum, það eru sannarlega fjársterkir aðilar sem gerast eigendur fjölmiðla frá einum tíma til annars. Það er gömul saga og ný í fjölmiðlum að lesendur og almenningur og auðvitað stjórnmálamenn spyrja sig síðan: Hvaða áhrif hefur eignarhaldið á umfjöllunina? Ég held samt að í þessu máli sé mikilvægt að horfast í augu við það að ríkisvaldið, sama hvort okkur líkar betur eða verr og sama hvort við höfum athugasemdir við einstaka þætti í þeirri hugsun, hefur fallist á það með almenningi, sem ég held að sé sammála að hluta til, að þessir fjölmiðlar, óháð þessum athugasemdum sem hv. þingmaður gerir um eignarhaldið og tengsl við margs konar hagsmunasamtök, hafi þrátt fyrir það ákveðnu lýðræðislegu hlutverki að gegna. Þeir fjalla um mál frá degi til dags sem varða samfélagið, sem varða í mörgum tilvikum hagsmuni almennings, sem varða það að sýna stjórnmálamönnum ákveðið aðhald. Þetta eru þættir sem ákveðin sátt ríkir um að mikilvægt sé að einhver inni af hendi. Það er hugsunin með ríkisstyrkjum eins og þeir birtast okkur í þessu tilviki, að styðja við þetta, það er hugsunin með þessum styrkjum upphaflega. Þess vegna gerir maður athugasemd við það að breyta skyndilega styrkjum þannig að það muni nokkuð um það fyrir þessi stærstu fyrirtæki, sem sannarlega sinna þessu lýðræðislega hlutverki. Það eru ekki mjög mörg fjölmiðlafyrirtæki sem sinna þessu tiltekna afmarkaða lýðræðishlutverki sem ég var að tala um. Að breyta því skyndilega, ekki síst á sama tíma og hv. þingmaður talar um að það sé sannarlega ástæða til að skoða eignarhaldið og skoða þessi sjónarmið og hagsmunatengslin, gefur manni þá tilfinningu, og hún er síst minni eftir þessar umræður hér í dag að auðvitað vaki það fyrir einhverjum hv. stjórnarliðum að þessir miðlar séu að einhverju leyti með einhverja vafasama starfsemi og þess vegna sé alveg eins gott að taka peningana af þeim.