157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[18:16]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp hæstv. ráðherra um styrki til einkarekinna fjölmiðla. 1. minni hluti hv. allsherjar- og menntamálanefndar leggst, eins og fram kemur í áliti hans, gegn samþykkt frumvarpsins í núverandi mynd og telur að framgangur þess sé ekki til þess fallinn að efla sjálfstæða fjölmiðla eða styrkja möguleika þeirra til að veita stjórnvöldum og öðrum valdhöfum nauðsynlegt aðhald. Þvert á móti hefur frumvarpið fremur þá ásýnd, eins og segir í álitinu, að verið sé að senda gagnrýnum fjölmiðlum skilaboð um að óánægja ríki með störf þeirra af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er auðvitað ályktun sem er m.a. dregin í ljósi verulega vafasamra ummæla sem stjórnarliðar, hv. þingmenn, hafa látið falla í tengslum við þessa umræðu. Frjálsir fjölmiðlar á Íslandi róa í dag lífróður í skugga yfirburðastöðu Ríkisútvarpsins. Við horfum á hvern á fætur öðrum leggja upp laupana. Þessi þróun er grafalvarleg fyrir lýðræðið og opinbera umræðu í landinu. Yfirburðastaða ríkisins á fjölmiðlamarkaði er gríðarleg og hún hefur bara styrkst á undanförnum árum. Á meðan sú staða er óbreytt verður einfaldlega ekki hægt að tryggja heilbrigða samkeppni á fjölmiðlamarkaði.

Virðulegi forseti. Í ljósi þeirrar stöðu er því miður nauðsynlegt að grípa til ráðstafana til að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla gagnvart ríkisreknu fjölmiðlafyrirtæki en leiðin sem er farin með þessu frumvarpi er ekki sú rétta. Minni hlutinn bendir í nefndaráliti sínu réttilega á að rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla stafi fyrst og fremst af skakkri samkeppnisstöðu við Ríkisútvarpið sem nýtur bæði opinberra fjárframlaga og keppir á sama tíma við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á Norðurlöndunum. Það er þess vegna villandi þegar samanburður frumvarpsins við styrkjakerfi annarra Norðurlanda er settur fram án þess að tekið sé tillit til þessarar sérstöðu RÚV. Sú staða sem er uppi veldur því að frjálsir fjölmiðlar standa höllum fæti gagnvart ríkisfjölmiðlinum. Við sem viljum styðja öfluga, frjálsa og sjálfstæða fjölmiðla hljótum að vera sammála um að bæta þarf rekstrarumhverfi þeirra en það verður ekki gert með því að gera þá enn háðari hinu opinbera. Þvert á móti getur slíkt fyrirkomulag þar sem stjórnvöld ákveða hver fær styrk og hversu mikinn dregið úr sjálfstæði fjölmiðlanna, veikt aðhaldshlutverk þeirra og aukið freistnivanda stjórnmálamanna sem vilja hlutast til um fjölmiðlun í landinu, sem aftur hlýtur að vera skoðað í ljósi varhugaverðra ummæla stjórnarliða varðandi þetta styrkjaumhverfi.

Virðulegi forseti. Frumvarpið sem hér liggur fyrir er kynnt sem stuðningur við einkarekna fjölmiðla með fyrirsjáanlegum hætti en í reynd felur það aðeins í sér einskiptisheimild til styrkveitinga sem rennur út um næstu áramót. Það sem helst stendur eftir er sú breyting að hámarksstyrkir verða lækkaðir úr 25% í 22% af heildarframlagi. Ljóst er, eins og kemur fram í áliti minni hlutans, að þessi breyting mun fyrst og fremst draga úr stuðningi við tvo stærstu fjölmiðla landsins, þá sem helst geta veitt Ríkisútvarpinu raunverulega samkeppni og veitt stjórnvöldum aðhald. Það er alvarlegt. Ef niðurstaða Alþingis verður sú að samþykkja þetta frumvarp í núverandi mynd eru þau skilaboð sem þingið sendir fjölmiðlum í raun sú að fjölmiðlum geti hefnst fyrir að veita stjórnvöldum aðhald. Það eru varhugaverð skilaboð. Hæstv. ráðherra hefur vissulega gefið út afdráttarlausar yfirlýsingar um annað, og það er vel, en ummæli annarra stjórnarliða standa óhögguð og varpa skugga á þessar fyrirætlanir. Þegar allt kemur til alls þá skiptir ásýnd auðvitað miklu máli eins og við þekkjum svo vel í stjórnmálunum.

Virðulegi forseti. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að vinna standi yfir við endurskoðun á stuðningskerfinu sjálfu sem átti upphaflega að koma fram á haustþingi en hefur verið frestað til næsta vors. Þá hefur ráðherra boðað endurskoðun á auglýsingarekstri Ríkisútvarpsins. Þessar fyrirætlanir, verði þær skynsamlega útfærðar, eru mun líklegri til að styrkja sjálfstæða og öfluga fjölmiðlun í landinu en þetta frumvarp gerir. Það er brýnna en nokkru sinni fyrr að við horfum á heildarmyndina. Hvernig tryggjum við fjölbreytta, sjálfstæða og gagnrýna fjölmiðlun á Íslandi? Svar við þeirri spurningu felst ekki í því að skerða stuðning við stærstu sjálfstæðu fjölmiðlana heldur í því að tryggja raunverulega jafnræði í samkeppni og draga úr ríkisafskiptum á þessum markaði.

Virðulegi forseti. Af þeim ástæðum sem ég hef rakið hér og í ljósi þess að gildistími frumvarpsins er aðeins til skamms tíma leggst 1. minni hluti hv. nefndar harðlega gegn lækkun hámarksstyrkja og þessari útfærslu meiri hlutans hér á Alþingi og telur að þingið eigi ekki að samþykkja það í núverandi mynd. Ég tek heils hugar undir þau sjónarmið. Við ættum frekar að beina sjónum að því að skapa raunverulegar forsendur fyrir frjálsa og fjölbreytta fjölmiðlun sem getur staðið á eigin fótum, veitt stjórnvöldum aðhald og styrkt lýðræðið.