157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[19:13]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að hafa leiðrétt þann skilning sem ég hafði á orðum hennar í þessum ræðustól fyrir örfáum mínútum. Það er vel að þingmenn Sjálfstæðisflokksins sjái mikilvægi fjölmiðlunar úti á landi, en um það snýst einmitt þetta frumvarp. Það snýst um að styrkja einmitt þann þátt fréttamennskunnar. Við í Flokki fólksins erum alveg á því að búa til meira svigrúm fyrir aðra fjölmiðla með því að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Ég held að það sé mikilvægt.

Eins vil ég nefna að það mætti líka aðeins skoða hlutverk RÚV, að það taki að einhverju leyti þátt í meiri umfjöllun. Vissulega er fréttamaður á Austurlandi og á Norðurlandi, en það eru ákveðnar eyður, fréttaeyður. Ef maður horfir á umfjöllun af landsbyggðinni, þar sem virkilega mikil verðmætaframleiðsla fer fram, þá eru það kannski þættir eða umfjallanir sem er raðað aftar í fréttatímann þannig að það er að einhverju leyti hliðarsett, jaðarsett. Þessi gagnrýni beinist kannski ekki endilega að þeim einkareknu fjölmiðlum sem eru hér í Reykjavík, ég tel bara að það sé tækifæri fyrir fjölmiðlun í landinu. Það er kannski liður í því að líta aðeins út fyrir borgarmörkin og skoða það jákvæða og þá miklu verðmætasköpun sem fer fram t.d. á Austurlandi, Norðurlandi, þannig að við fáum jákvæðar fréttir þaðan en ekki bara þegar eitthvað brestur.

Ég fagna því hér í lokin að að hv. þingmaður sé kannski ekki alfarið á móti þessum áherslum frumvarpsins, þ.e. að efla landsbyggðarfjölmiðla.