stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023. Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, m.a. vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi. Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá umhverfis- og samgöngunefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 5. júní síðastliðinn sem finna má á þingskjali 653 í máli nr. 271 á því löggjafarþingi.
Líkt og fram kemur í greinargerð frumvarpsins er það nú endurflutt með þeirri breytingu sem lögð var fram í nefndaráliti meiri hlutans, að tekin yrði út heimild ráðherra til að leggja fram eina innviðastefnu í stað sjálfstæðrar stefnu á hverju sviði fyrir sig. Þar með er framkvæmdin skv. 3. gr. í meginefnum óbreytt. Það er að ráðherra leggi fram á Alþingi á hverju kjörtímabili tillögur til þingsályktana um stefnur til 15 ára á hverju sviði fyrir sig. Þá er lögð til smávægileg breyting á orðalagi 4. gr. svo skýrt sé á lagatextanum að ráðherra eigi val um hvort skipað sé eitt stefnuráð eða fleiri. Ekki er um efnisbreytingu að ræða hvað það varðar en í greinargerð frumvarpsins um 4. gr. á síðasta löggjafarþingi kom fram að ráðherra skipaði stefnuráð, eitt eða fleiri. Meiri hlutinn vísar að öðru leyti í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Jónína Björk Óskarsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason.
Virðulegur forseti. Þetta er einfalt í sniðum og til komið vegna breytingar á Stjórnarráði sem voru gerðar þegar ný ríkisstjórn var mynduð. Eins og kemur fram þá var tekin til greina sú andstaða sem birtist í því að það yrði búin til ein stefna. Umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta þingvetri tók tillit til þess og lagði fram breytingartillögur þar að lútandi sem ráðuneytið hefur nú tekið inn í frumvarpið og því tel ég að þetta mál, eins einfalt og það er, verði held ég án einhverrar andstöðu. Breytingar á Stjórnarráðinu hafa þegar verið gerðar og við erum bara að uppfylla þau ákvæði að þau mál sem tilheyra hverju ráðuneyti fyrir sig séu tiltekin í lögum.