stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans orð hér. Já, pólitík er svona, okkur greinir stundum á en oft erum við sammála. Maður fann alveg ástríðu þess ráðherra sem núna situr í félagsmálaráðuneytinu fyrir að taka húsnæðismálin til sín. Það held ég að hafi verið ástæðan fyrir því að þetta var fært svona. Ég skil því þau sjónarmið sem voru uppi á borðinu hvað það varðar af því að húsnæðismál hafa verið hennar hjartans mál. Við erum með þingmann í Flokki fólksins, fyrrverandi formann VR, sem hefur látið sig húsnæðismál mikið varða í gegnum tíðina. Síðan var stofnaður sérstakur húsnæðishópur undir hennar ráðuneyti sem ég sit m.a. í, þannig að ég átta mig alveg á því hver vilji þessara aðila var þó að okkur geti greint á um það hvort það sé betra að hafa þetta allt á einum stað. Mér fannst ekkert endilega umsagnaraðilar vera að rífast yfir því að húsnæðismálin hefðu verið færð eitthvert annað, heldur hitt að byggðamál yfirhöfuð gætu týnst. Maður fann það bara að þeir umsagnaraðilar sem komu fyrir nefndina síðast tóku flestallir undir sjónarmið Byggðastofnunar hvað þetta varðar. Að því leytinu til var nefndin sammála: Bíðum með þetta. Við getum svo verið ósammála um hvernig við stillum upp í Stjórnarráðinu en þetta eru bara tilfinningar til að ramma utan um það sem þegar er orðið.