157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna biðlista barna eftir greiningu og meðferð.

[10:33]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Nefnd var Ráðgjafar- og greiningarstöð sem heyrir reyndar undir annað ráðuneyti en eigi að síður eru biðlistar barna víðast hvar í kerfinu gríðarlega langir. Þegar ég kom inn í heilbrigðisráðuneytið í janúar voru á fjórða þúsund að bíða t.d. eftir greiningu á ADHD. Eitt af áherslumálum ríkisstjórnarinnar er að stytta bið barna eftir greiningu og meðferð enda börnin okkar framtíð, þannig að ég hófst strax handa. Það sem snýr að mér er geðheilsumiðstöð barna og þar var byrjað á því að styrkja stofnunina um tvö stöðugildi en líka ráðist í ferlagreiningar og ljóst að þar eru tækifæri með notkun rafrænna lausna. Síðan erum við í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið og auðvitað hugsum við okkur að nýta skólana betur og þarna er t.d. skammtímaaðgerð sem er tilraunaverkefni með ADHD-greiningar og að vinna þær meira í nærumhverfi barna og innan skólanna. Nýtt tölvukerfi innan skólanna sem heitir Frigg mun hjálpa þar til. Síðan erum við með tímabundið viðbótarfjármagn til að vinna niður biðlista og þar þurfum við auðvitað að forgangsraða og síðan eru langtímaaðgerðir að móta einfaldari, skilvirkari og aðgengilegri þjónustufarvegi.

Af því að einkaaðilar voru nefndir er einnig til skoðunar að bjóða út þessar greiningar. Þegar kemur að talmeinaþjónustu er núna verið að vinna miðlægan biðlista á vegum Sjúkratrygginga, búið að veita fjármagn í það og sömuleiðis er þar verið að skoða verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga þannig að það er gríðarlega margt í gangi.