aðgerðir stjórnvalda vegna biðlista barna eftir greiningu og meðferð.
Frú forseti. Það er rétt að í heilbrigðiskerfinu ríkir gríðarleg innviðaskuld og hún hefur ekki orðið til á vakt núverandi ríkisstjórnar. Það er auðvitað forgangsverkefni þessarar ríkisstjórnar að ná tökum á efnahagsmálum þannig að við höfum efni á velferð. Þegar kemur að Ljósinu er hægt að segja frá því að nú hafa loks náðst samningar milli Sjúkratrygginga og Ljóssins fyrir þetta ár og þá er auðvitað hægt að halda áfram fyrir það næsta. En þetta er auðvitað ekki boðlegur málflutningur, að halda því fram að verið sé að skerða fjárframlög til Ljóssins þegar þetta var einskiptisfjárveiting frá hv. velferðarnefnd. En nú þegar kominn er grundvöllur til að semja fyrir næsta ár er ekki loku fyrir það skotið að veitt verði viðbótarfjármagn.