starfsemi Vélfags.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður veit er þetta mál einmitt í ferli hjá utanríkisráðuneytinu og innan ráðuneytisins. Það er einfaldlega í gangi enn þá þannig að ég vil síður tjá mig um þetta einstaka mál, ekki frekar en önnur þau mál sem eru í meðferð og umfjöllun hjá ráðuneytinu. Ég get fullvissað hv. þingmann um að það er að sjálfsögðu verið að fara eftir stjórnsýslulögum og öllum þeim lögum og römmum sem okkur Íslendingum er boðið að fara eftir. Við þurfum líka að hafa heildarsamhengi hlutanna í huga. Um er að ræða alþjóðlegar skuldbindingar, þvingunaraðgerðir sem Ísland, eins og önnur ríki, tekur þátt í og tekur undir vegna hernaðaraðgerða Rússa í Úkraínu og framgöngu þeirra gagnvart vestrænum ríkjum. Þá er ljóst að markmið Rússa er einfaldlega að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Það sem til okkar friðar heyrir er að við verðum að fara vel yfir þetta mál. Lögfræðingar ráðuneytisins hafa að sjálfsögðu verið í samskiptum við fyrirtækið og lögfræðinga á vegum þess en ég vil líka minna á að samkvæmt íslenskum lögum er íslenskum fjármálastofnunum skylt að frysta fjármuni sem eru í eigu, vörslu eða undir stjórn aðila sem sætir alþjóðlegri frystingu. Í þessu tilfelli var það einmitt einn tiltekinn íslenskur banki sem tók þá ákvörðun. Við erum einfaldlega að fara yfir þetta mál og með það til meðferðar og ég tel það vera á viðkvæmu stigi og vil ekki tjá mig um það frekar en það er alveg ljóst að það eru miklir hagsmunir undir, annars vegar að gæta að öllum málsmeðferðar- og meðalhófsreglum og hins vegar að Íslendingar lendi ekki aftur á gráa listanum. Það mun hafa stórfellt tjón í för með sér fyrir íslenskt samfélag, með hærri vaxtabyrði fyrir ríkissjóð og verri afkomu.