starfsemi Vélfags.
Virðulegi forseti. Ég vil undirstrika það að þetta er fyrsta mál sinnar tegundar sem kemur á borð okkar Íslendinga. Við föllum undir alþjóðaskuldbindingar sem ég veit reyndar að Miðflokkurinn vill ekki fella sig við. Gott og vel, það er ákveðin pólitík að vilja ekki (Gripið fram í.) falla undir og fara eftir alþjóðaskuldbindingum. Við þurfum að vanda okkur. Það eru miklir hagsmunir undir og fyrst og fremst munum við hafa hagsmuni Íslands í huga þegar við afgreiðum þetta mál. Í stóra samhenginu eru undir íslenskir hagsmunir og við förum samkvæmt lögum og samkvæmt okkar alþjóðaskuldbindingum. Þannig erum við að vinna í ráðuneytinu og þannig eru samskiptin við fyrirtækið. Við munum sjá hvað setur núna á næstu dögum, hvernig þessu máli fram vindur. Það er eðlilegt að það sé sýndur áhugi á þessu máli af því að þetta er fyrsta mál sinnar tegundar. Það sem ráðuneytið getur gert er að fara fyrst og fremst eftir íslenskum lögum og fara að þeim alþjóðaskuldbindingum sem við Íslendingar erum líka búin að samþykkja að fara eftir. Þannig liggur í málinu. Frekar vil ég ekki tjá mig um þetta mál.