biðtími kvenna eftir geislameðferð krabbameina.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og við munum styðja hana í öllum þeim aðgerðum sem fram undan eru. En í Morgunblaðinu í morgun var fjallað um einstakling sem leitaði sér aðstoðar á göngudeild geðdeildar vegna líðanar sinnar. Á móti honum tók læknir sem talaði hvorki íslensku né nægilega góða ensku til að hægt væri að eiga eðlilegt samtal. Viðkomandi varð því að útskýra veikindi sín á öðru tungumáli en íslensku; veikindi sem oft og tíðum er erfitt að útskýra á okkar eigin móðurmáli á erfiðum og viðkvæmum tímum í okkar lífi, hvað þá að þurfa að gera það á öðru tungumáli.
Virðulegi forseti. Við erum auðvitað öll þakklát fyrir þá fjölbreyttu hópa heilbrigðisstarfsfólks sem starfa í kerfinu okkar og leggja sig fram en samskipti sjúklings og læknis eru hornsteinn í öruggu og mannlegu heilbrigðiskerfi. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa að sjúklingar geti tjáð sig á sínu eigin tungumáli, á íslensku hér á Íslandi, sérstaklega þegar um andlega heilsu er að ræða þar sem orð, blæbrigði og skilningur (Forseti hringir.) skipta miklu máli.
Ég spyr því hæstv. ráðherra: Telur ráðherra ásættanlegt að einstaklingur í viðkvæmri stöðu (Forseti hringir.) geti ekki átt skiljanlegt samtal við lækni á íslensku á Íslandi og hyggst ráðherra setja skýr viðmið um tungumálakunnáttu heilbrigðisstarfsmanna einmitt til þess að tryggja öryggi og traust sjúklinga?