157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjárframlög til Ljóssins og gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta.

[10:53]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Í gær bárust skilaboð frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Þau voru fremur einföld: Það er ekki svigrúm til að auka útgjöld fjárlagafrumvarpsins meira en 400 milljónir í meðförum þingsins án þess að brjóta stöðugleikaregluna. Það er sláandi að þrátt fyrir allar þær skattahækkanir ríkisstjórnarinnar, sem eru tæplega 30 milljarðar á heimilin og fyrirtækin í landinu, sé ekki svigrúm þingsins til að auka fjármagn í þjóðþrifamál eins og t.d. Ljósið eða Fjölskylduhjálp sem eru tveir mikilvægir aðilar sem hafa það að markmiði að styðja við þá sem eiga um sárt að binda, einhver „samtök úti í bæ“, eins og hæstv. forsætisráðherra kallaði þau, eða jafnvel að efla forgangsmál Viðreisnar um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu.

Í kosningamyndbandi Viðreisnar fyrir seinustu kosningar sagði hæstv. utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar að eitt það fyrsta sem Viðreisn myndi gera ef þau kæmust í ríkisstjórn væri að setja fjármuni í að tryggja gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu, klára dæmið, eins og hæstv. utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar sagði, klára dæmið. Ekkert bólar enn á því. Kannski er forgangurinn ekki meiri en það. Því langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvenær á að klára dæmið?