endurbætur á flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir skilmerkilegt og gott svar. Það vantaði að vísu, fannst mér, jarðarberið ofan á kökuna hvað varðar frekari tímaramma sem við sæjum fyrir okkur. Það er alveg ljóst að sá sem hér stendur og hæstv. innviðaráðherra deila skoðun hvað varðar uppbyggingu flugvallar í Vatnsmýrinni. Því er mikilvægt í þessu samhengi, frú forseti, að þingheimur sameinist um það að drífa þetta verkefni áfram vegna þess að, eins og hefur komið fram í fleiri fyrirspurnum, stundum þurfum við að fjárfesta til þess að fá meira til baka. Það á svo sannarlega við hvað varðar flugstöðina í Reykjavík. (Forseti hringir.) Það að fyrsta kynningin sem erlendir gestir okkar fá þegar þeir koma til landsins og fara út á land sé að fara í flugstöðina í Reykjavík í innanlandsflug er ekki sú kynning sem við viljum sjá. Ég fagna svörum hæstv. innviðaráðherra hvað það varðar (Forseti hringir.) en ítreka að það er mjög mikilvægt að tímaramminn liggi fyrir.