157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Framsókn munum vera á gulu í þessu máli. Við styðjum vissulega aukinn fjárhagslegan stuðning til fjölmiðla á landsbyggðinni sem eiga oft í erfiðleikum með sitt rekstrarumhverfi. Hins vegar er afar brýnt að ekki sé verið að taka úr einum vasa til að setja í hinn. Hér er verið að leggja til þá breytingu að skerða rekstrarstuðning til stórra fjölmiðla á landsbyggðinni til að færa til þeirra minni. Við hefðum frekar kosið að halda hlutunum óbreyttum frá því sem verið hefur undanfarin ár og leggja þá frekar til einskiptisstuðning til þess einmitt að styðja við minni fjölmiðla á landsbyggðinni, sem hefur verið gert. Við munum því vera á gulu í þessu máli.