157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:09]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ástandið á fjölmiðlamarkaði hér á Íslandi er algerlega óviðunandi og það höfum við rætt lengi. Það hefur verið rætt í þessum sal og reynt var að bregðast við því með, vil ég segja, þeim lögum sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum verið ósátt við, enda viljum við ekki sjá ríkisvæðingu á öllum fjölmiðlum á landinu. Við viljum ekki sjá að allir fjölmiðlar séu ríkisstyrktir. Ráðherra hefur boðað endurskoðun á þessu fyrirkomulagi í heild. Það hefði farið betur á því ef þetta hefði verið látið liggja núna að óbreyttu og þá farið í þessa heildarendurskoðun og tekið tillit til málsins. Þannig að ég mun vera á gulu í þessu máli.