157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:10]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við gerum athugasemdir við vinnubrögðin í þessu, teljum að þessi breyting, að endurútdeila innan þessa potts úr 25% að hámarki upp í 22% að hámarki, veki upp óþægilegar spurningar og ónotatilfinningu hjá mörgum, sendi undarleg skilaboð og ekki ljóst að skýringarnar haldi sem veittar eru. Styrkjakerfið er í víðari skilningi náttúrlega gallað eins og sannarlega sannast í þessu máli. Ég bendi þingheimi á að við erum með lausn við markaðsbrestinum sem óneitanlega er, ef við viljum orða það þannig, og það er t.d. tillaga okkar að leyfa fólki að ráðstafa frjálst hluta síns útvarpsgjalds. Það tekur á öllum þeim vanda sem reynt er að laga hér með þessari misheppnuðu tilraun ár eftir ár. Ef mönnum er alvara þá geta þeir farið að ræða það. Þangað til það gerist þá eru menn bara á villigötum með þetta.