157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:11]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að íslenskur fjölmiðlamarkaður sé sjúkur. Við erum með þá stöðu uppi að við erum með Ríkisútvarpið sem er í algjörri yfirburðastöðu á þessum markaði og því auðvitað fullkomlega eðlilegt að við hugum að því að styrkja minni fjölmiðla í þessari baráttu. Það er í rauninni eina ástæðan fyrir því að við Sjálfstæðismenn ákváðum reyndar að vera á gulu í þessu máli. Ég vil nefna það að á meðan við erum í þeirri stöðu að Ríkisútvarpið hefur yfirburðastöðu munum við ekki jafna leikinn hér nema með því að styrkja minni fjölmiðlana.