157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:17]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka nefndarmönnum og þingheimi kærlega fyrir góða samvinnu við gerð þessa máls og einnig því að við séum búin að ná að hraða þessu og fara með hratt í gegn. Þetta er mikilvægt mál. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla og ég tel að það sé stigið jákvætt skref í þessu máli þar sem markvisst er farið í það að styrkja landsbyggðarmiðlana, að styrkja miðlana um allt land til að safna sögum, segja fréttir heima úr héraði. Þar sem markaðsbresturinn er mestur verður stuðningurinn meiri. Hér er ekki verið að minnka framlag til einkarekinna fjölmiðla heldur auka það á landsbyggðinni. Þessu eru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins að mótmæla. Þeir setja sér þá forsendu að ef ríkið styður ekki 25% af kostnaði fjölmiðla þá ætli þeir ekki að samþykkja frumvarpið. Ég tel bara vel að við séum að fara með þetta í niður 22%. Ég heyri á málflutningi Sjálfstæðismanna að þeir eru ekkert voðalega hrifnir af stuðningi ríkisins við einkarekna fjölmiðla. Hér er verið að draga úr honum hlutfallslega, ekki draga úr upphæðinni heldur halda henni áfram og dreifa henni betur um landið til að tryggja að við tökum á markaðsbrestinum (Forseti hringir.) þar sem hann er, það verði ekki til fréttaeyðimerkur á Íslandi og við höldum áfram að safna sögum úr héraði. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)