157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:19]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði mér nú ekki að taka til máls hérna. En að hlusta hér á ræðu hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar þar sem hann vænir Sjálfstæðisflokkinn og fleiri flokka í minni hlutanum um að vera að berjast gegn landsbyggðinni er auðvitað ekki boðlegt í þessum þingsal, sérstaklega í ljósi þeirra mála sem hér hafa verið lögð á dagskrá á undanförnum vikum og mánuðum sem mörg hver eru mjög andsnúin landsbyggðinni. Það er engin andstaða hjá stjórnarandstöðunni við að styrkja litla fjölmiðla á landsbyggðinni til að flytja þar sínar héraðsfréttir — engin andstaða. Það er andstaða við það fyrirkomulag sem þessir ríkisstjórnarflokkar standa vörð um; að standa hér nánast að einokun á fjölmiðlamarkaði. Myndum við vilja vísa því til Samkeppniseftirlitsins hver staða Ríkisútvarpsins er á fjölmiðlamarkaði, sem þessir ríkisstjórnarflokkar styðja nú mjög vel við? Nei, þetta stenst auðvitað enga skoðun, þessi einokun sem á sér stað á þessum markaði. (Gripið fram í.)Þessi framlög sem nú er verið að afgreiða hér í þinginu til fjölmiðla skipta mjög litlu máli í rekstri þessara stærri sjálfstætt reknu fjölmiðla. Það er þessu sem við verðum að breyta. Þessari nálgun viljum við breyta. (Forseti hringir.) Það er þess vegna sem við sitjum hjá í dag en ekki vegna þess, sem hv. þingflokksformaður er stöðugt að væna okkur um og gerði í ræðum í gær, að við séum eitthvað að berjast á móti landsbyggðinni. Það er þvert á móti.