157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:21]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er með ólíkindum að þessi breytingartillaga hafi þurft að koma fram, breytingartillaga sem lýtur að því að halda þó til haga fyrirsjáanleika einkarekinna fjölmiðla í þessu annars langa og langdregna leikriti stjórnvalda á fjölmiðlamarkaði þar sem enginn hefur haft dug til þess, hvorki þessi ríkisstjórn né fyrri ríkisstjórnir, að taka á vanda einkarekinna fjölmiðla. Þar er bara einn vandi og það eru afskipti og aðkoma ríkisvaldsins að fjölmiðlamarkaði. Það er með ólíkindum að ekki hafi verið hægt, sérstaklega í ljósi loforða hæstv. ráðherra um það að ætla að ráðast í stórkostlegar breytingar á öllu þessu umhverfi, að una þessum einkareknu fjölmiðlum þeim fyrirsjáanleika og loforðum sem þeim voru gefin með þessu, þ.e. að koma þeim á ríkisjötuna á sínum tíma. Þetta er afskaplega aumt, virðulegur forseti.