157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:25]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér kemur enginn upp af stjórnarandstöðunni sem er að mæla gegn því að styrkir séu til héraðsfréttamiðla. Ég, búandi austur á landi, geri mér fyllilega grein fyrir mikilvægi héraðsfréttamiðla. Ég sakna t.d. sjónvarpsstöðvarinnar N4 sem fjallaði mjög vel um málefni landsbyggðarinnar og landsbyggðanna. En við skulum samt átta okkur á því að þrátt fyrir að stjórnarliðar sjái það ekki þá er það alveg á hreinu að starfsfólk Sýnar og Árvakurs lesa öðruvísi í þessa afgreiðslu heldur en hv. stjórnarliðar. Þegar hæstv. húsnæðis- og félagsmálaráðherra sakar Morgunblaðið um að vera falsfréttamiðil og flokksbróðir hennar kemur hér upp og segir að eigi að taka styrkina af þessum fjölmiðlum sem eru að gagnrýna ríkisstjórnina — ég held við verðum að setja hlutina í samhengi. Þrátt fyrir að stjórnarliðar geri það ekki þá veit ég að starfsfólk þessara fjölmiðla áttar sig á því hvað klukkan slær hér í þessum sal.