fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Það er látið hér eins og þetta skipti einhverju máli og að við séum að setja einhverjar forsendur fyrir því hverjir séu að fá styrkina. Þetta er ekki þannig. Það sem við erum að gagnrýna er að Alþingi Íslendinga sé farið að skipta sér af því hversu mikið hver fjölmiðill fær. Það er skortur á lýðræði. Þetta er aðför að lýðræðinu, algerlega. Það sem við erum að leggja fram hér er að ef við eigum að hafa styrki þá eigi það að vera óbeint. Það má ekki vera þannig að þingmenn stjórnarflokkanna og hæstv. ráðherrar séu að gagnrýna fjölmiðlana og næst sjái maður að dregið sé úr styrkjum til þeirra. Það er galið að það sé verið að stilla þessu upp milli héraðsfréttamiðla og hinna. Það er það sem við erum að gagnrýna. Þetta er prinsippið um það hvort löggjafarvaldið eigi að hafa áhrif beint inn í fjölmiðlana með styrkjum og færa þetta svona til.
Hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar er að tala af sér með því að segja að þetta sé farið að segja til um það hver fær hvað, að Alþingi sé farið að skipta sér af því. Þetta er alvarlegt.